Aðrir sjóðir
8.10.2004
Vöðvaþræðir og eiginleikar íslenks kindakjöts
Lokið er rannsóknarverkefninu Vöðvaþræðir og eiginleikar íslenks kindakjöts. Verkefnisstjóri var Guðjón Þorkelsson.
Markmið verkefnisins var m.a. að kanna áhrif aldurs sauðfjár við slátrun.
17.9.2004
Málþing og námsstefna um sjálfbæra þróun
Hátíðasalur Háskóla Íslands, 24.- 25. september 2004
Á málþinginu verða m.a. kynntar helstu niðurstöður rannsóknarverkefnisins Forsendur sjálfbærrar þróunar í íslensku samfélagi sem nú er u.þ.b. að ljúka eftir þriggja ára starf. Helsti styrktaraðili verkefnisins hefur verið markáætlun RANNÍS um upplýsingatækni og umhverfismál.
25.8.2004
Leiðbeiningar og eyðublöð Rannsóknasjóðs komin á netið
Umsóknarfrestur í Rannsóknasjóð er 1. október 2004, sem er mánuði fyrr en hefur verið.
9.7.2004
Upplýsingatækni og umhverfismál, lokaúthlutun markáætlunar
Markáætlun um upplýsingatækni og umhverfismál styrkir í lokaúthlutun sinni tólf verkefni með alls 33,6 m.kr. Auk þess komu til úthlutunar nú 8 m.kr til tveggja langtímaverkefna sem fyrst hlutu styrk 2003. Heildarúthlutun er 41,6 m.kr til fjórtán verkefna. Meðalstyrkur er tæpar 3 m.kr.
10.5.2004
Sjö hlutu starfslaun úr Launasjóði fræðiritahöfunda
Stjórn Launasjóðs fræðirithöfunda úthlutaði sjö umsækjendum starfslaunum fyrir árið 2004. Alls bárust sjóðnum 48 umsóknir. Starfslaunin eru til sex mánaða.
30.4.2004
Samræmdur gagnagrunnur um náttúru Íslands
Lokið er allviðamiklu samstarfsverkefni nokkurra ríkisstofnana og fyrirtækja í einkaeigu við að byggja frumgerð að tölvukerfi sem nefnist “Samræmdur gagnagrunnur um náttúru Íslands”. Kerfið gerir fjölbreytt gögn um eðli íslenskrar náttúru á landi, sjó og vatni aðgengilegri en áður og er bæði miðað við þarfir almennings og sérfræðinga. Einnig geta fyrirtæki og stofnanir nýtt sér kerfið við áætlanir, skipulag og aðrar ákvarðanir sem byggja á náttúrufarsupplýsingum.
30.3.2004
Tækjasjóður úthlutar 166,5 milljónum króna
Stjórn Tækjasjóðs samþykkti á fundi sínum 29. mars að úthluta allt að 166,5 m.kr. til 45 verkefna.
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði til rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði skal taka mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs á hverjum tíma.
25.2.2004
Miðlun menningarsögulegra upplýsinga
Frá árinu 1999 hefur verið unnið að verkefninu Miðlun menningarsögulegra upplýsinga, sem styrkt var af markáætlun Rannís um upplýsingatækni og umhverfismál. Markmið verkefnisins var annarsvegar að þróa gagnakerfi um staðbundnar menningarsögulegar upplýsingar þannig að hægt væri að miðla upplýsingum úr miðlægum gagnagrunni um veraldarvefninn, og hinsvegar að miðla upplýsingunum á þann hátt að þær mættu nýtast sem flestum og verða til þess að auka vægi menningarferðaþjónustu, efla atvinnulífið, sérstaklega í dreifbýli og styrkja nám í samfélagsgreinum.
13.1.2004
Netbókun, nýr hugbúnaður
IT-Ísland efh. hefur lokið við að þróa hugbúnað til tímabókana á Internetinu. Hugbúnaðurinn sem kallast Netbókunarkerfið er ætlaður þjónustufyrirtækjum sem vilja auka þjónustu við viðskiptavini sína, auka hagræðingu og skilvirkni í rekstri. Netbókunarkerfið nýtist þjónustufyrirtækjunum einnig sem öflugt tól til að halda utan um tímabókanir hvernig sem þær berast.


English




