Aðrir sjóðir
20.12.2005
Vatnsauðlindir Íslands - jarðefnafræðileg rannsókn, rannsóknarverkefni lokið í U&U
Aðalmarkmið verkefnisins var að rannsaka snefilefnainnihald svo og vetnis-, súrefnis- og kolefnissamsætur í íslensku grunnvatni bæði heitu og köldu.
Verkefnisstjóri var Hrefna Kristmannsdóttir.
15.12.2005
Hagnýting örtækni - norræn styrkur
Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe) mun fjármagna verkefni innan örtækni fyrir um 10 milljónir norskra króna á árunum 2006 -2007.
6.12.2005
Alfræði íslenskra bókmennta og bókmenntafræða - rannsóknarverkefni í U&U lokið
Markmiðið var að semja rækilegt uppflettirit um íslenskar bókmenntir frá upphafi til okkar daga og um íslenska bókmenntafræði, með greinum um einstaka höfunda, hugtök og verk.
Verkefnisstjóri var Ástráður Eysteinsson.
5.12.2005
185 m.kr. úthlutað til erfðafræði og örtækni
Stjórn markáætlunar um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni samþykkti sl. fimmtudag að veita 185,2 milljónum króna til 14 verkefna. Þetta er fyrsta úthlutun áætlunarinnar sem hleypt var af stokkunum í samræmi við stefnu Vísinda- og tækniráðs frá 18. desember 2003 og ályktun ráðsins frá 17. desember 2004.
14.11.2005
Nýting fjarkönnunar við vistgerðaflokkun - rannsóknarverkefni lokið í U&U
Ráðist var í verkefni þetta til að kanna hvort beita mætti fjarkönnun við kortlagningu vistgerða á landinu og nota SPOT-5 gögn.
10.11.2005
Fjarlækningar- aðgengi að sérfræðiþjónustu innan heilbrigðiskerfis - rannsóknarverkefni í U&U lokið
Markmið verkefnisins var að afla reynslu og þekkingar sem gæti nýst fyrir framtíðarskipulagningu fjarlækningaþjónustu á Íslandi.
9.11.2005
Upplýsingavefurinn Lífvísir og lífupplýsingafræði - rannsóknarverkefni í U&U lokið
Markmið verkefnisins var að þróa tvö forrit sem herma mögnun í hvörfum með erfðaefni.
9.11.2005
NámUST – notkun UST sem miðils í námi og kennslu - rannsóknarverkefni í U&U lokið
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða möguleika sem notkun upplýsinga- og samskiptatækni opnar fyrir nám og kennslu.
26.10.2005
Netnotkun íslenskra barna og unglinga - rannsóknarverkefni í U&U lokið
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig börn og unglingar nota Netið á Íslandi.
24.8.2005
Flokkun heilarita með stoðvigravélum - rannsóknarverkefni lokið í markáætlun um U&U
Markmið verkefnisins var gerð hugbúnaðar til þess að greina sjálfvirkt "áhugaverð" svæði í heilaritum, sérstaklega með tilliti til flogaveiki.
Verkefnisstjóri var Tómas Philip Rúnarsson.


English




