Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

20.12.2005

Vatnsauðlindir Íslands - jarðefnafræðileg rannsókn, rannsóknarverkefni lokið í U&U

Aðalmarkmið verkefnisins var að rannsaka snefilefnainnihald svo og vetnis-, súrefnis- og kolefnissamsætur í íslensku grunnvatni bæði heitu og köldu.
Verkefnisstjóri var Hrefna Kristmannsdóttir.

15.12.2005

Hagnýting örtækni - norræn styrkur

Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe) mun fjármagna verkefni innan örtækni fyrir um 10 milljónir norskra króna á árunum 2006 -2007.

6.12.2005

Alfræði íslenskra bókmennta og bókmenntafræða - rannsóknarverkefni í U&U lokið

Markmiðið var að semja rækilegt uppflettirit um íslenskar bókmenntir frá upphafi til okkar daga og um íslenska bókmenntafræði, með greinum um einstaka höfunda, hugtök og verk.
Verkefnisstjóri var Ástráður Eysteinsson.

5.12.2005

185 m.kr. úthlutað til erfðafræði og örtækni

Stjórn markáætlunar um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni samþykkti sl. fimmtudag að veita 185,2 milljónum króna til 14 verkefna. Þetta er fyrsta úthlutun áætlunarinnar sem hleypt var af stokkunum í samræmi við stefnu Vísinda- og tækniráðs frá 18. desember 2003 og ályktun ráðsins frá 17. desember 2004.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<