Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

18.12.2006

Óson og útblá geislun á Íslandi - verkefni lokið í U&U

Útfjólublá geislun frá sólinni er orkurík og getur skaðað fólk varanlega. Það er því mikilvægt að fylgjast með styrk geislunarinnar og gera sér grein fyrir hvaða styrk megi búast við hér á landi.
Verkefnisstjóri var Helgi Jensson.

12.12.2006

ICT í Sjöundu rammaáætlun ESB á CORDIS

Ný heimasíða Evrópusambandsins um áætlun ESB á sviði upplýsinga- og samskiptatækni (Information and Communication Technology)  er  á http://cordis.europa.eu/fp7/ict/

 Drög að vinnuáætlun ICT fyrir 2007 og 2008   voru kynnt á  IST2006 ráðstefnunni og sýningunni sem haldin var í Helsinki dagana 21. til 23. nóvember sl. http://europa.eu.int/information_society/istevent/2006/index_en.htm

8.12.2006

VITI - námsviðmót fyrir íslenskukennslu á Netinu - verkefni lokið í U&U

Markmið verkefnisins var að þróa kennsluumhverfi og eftirfylgnikerfi fyrir opið fjarnám í íslensku um Netið.
Verkefnisstjóri var Birna Arnbjörnsdóttir.

6.12.2006

Tækjasjóður umsóknarfrestur til 15. janúar

Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði vegna rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði skal taka mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs á hverjum tíma.

17.11.2006

Útlendingar á Íslandi: Möguleikar og mótlæti

Viðfangsefni verkefnisins sem styrkt var af Rannsóknasjóði (áður Vísindasjóði) var að rannsaka veruleika fólks sem flust hefur til Íslands vegna atvinnu frá 1990, en jafnframt að skoða áhrif aukins fólksflutnings á íslenskt samfélag. Verkefnisstjóri var Unnur Dís Skaptadóttir.

15.11.2006

Algengi spilafíknar meðal fullorðinna á Íslandi

Meginmarkmið rannsóknarverkefnisins var að kanna spilahegðun og algengi spilafíknar meðal fullorðinna Íslendinga árið 2005. Verkefnið var styrkt af Rannsóknasjóði.

25.10.2006

Fjárfest í rannsóknum og nýsköpun á Norðurlöndum

Norræna ráherranefndin og Framkvæmdastjórn ESB héldu ráðstefnuna Fjárfest í rannsóknum og nýsköpun (Investing in Research and Innovation) í Kaupmannahöfn 16. til 18. október s.l. Markmið ráðstefnunar var að koma á sameiginlegum skilningi á þörf fyrir fjárfestingu í rannsóknum og nýsköpun. Meðal ræðumanna á ráðstefnunni var vísinda- og tæknistjóri Evrópusambandsins Janez Potocnik.

5.10.2006

Námsstyrkir í verkfræði og raunvísindum

Minningarsjóður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
Stjórn sjóðsins auglýsir hér með eftir námsstyrkjum vegna náms á skólaárinu 2006-2007. Styrkirnir eru ætlaðir nemendum í verkfræði og raunvísindum og hafa þeir einkum verið veittir nemendum í doktorsnámi.

5.9.2006

Þróun netvæddrar áhugakönnunar fyrir grunn- og framhaldsskólanema - verkefni lokið í markáætlun um U&U

Verkefnið var unnið af Sif Einarsdóttur, dósent við HÍ og Manfred Lemke, verkefnisstjóra og aðjunkt sem störfuðu við Kennaraháskóla Íslands ásamt James Rounds prófessor við Háskólann í Illinois, Champaign-Urbana.

11.8.2006

Erfðir og örtækni undirbúningsstyrkir 1. sept

Rannsóknamiðstöð Íslands – RANNÍS auglýsir eftir umsóknum um undirbúningsstyrki í markáætlun um rannsóknir á sviði erfðafræði í þágu heilbrigðis og á sviði örtækni.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<