Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

31.1.2006

Ný stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda

Menntamálaráðuneytið hefur skipað nýja stjórn Launasjóðs fræðiritahöfunda, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 268/1999 um sjóðinn. Skipunin er frá 15. febrúar 2006 til 30. september 2007.

Stjórnin er þannig skipuð:

  1. Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri, formaður, skipaður án tilnefningar.
  2. Ari Trausti Guðmundsson náttúrufræðingur, varaformaður, tilnefndur af Rannsóknamiðstöð Íslands.
  3. Ólöf Garðarsdóttir, sagnfræðingur, tilnefnd af Hagþenki - félagi höfunda fræðirita og kennslugagna.

19.1.2006

Stofngerð þorsks við Ísland - rannsóknarverkefni lokið í markáætlun um U&U

Markmið verkefnisins var að auka þekkingu á stofngerð þorsks við Ísland og þar með að gera það mögulegt að meta hlut ólíkra hrygningaeininga í nýliðun og veiðistofni hverju sinni.
Verkefnisstjóri var Guðrún Marteinsdóttir.

11.1.2006

Starfslaun Launasjóðs fræðiritahöfunda

Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum sem veitt verða frá 1. júní 2006. Rétt til að sækja úr Launasjóði fræðiritahöfunda hafa höfundar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku. Umsóknarfrestur er 25. febrúar.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<