Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

21.12.2007

Bjarna Benediktssonar styrkir

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um Bjarna Benediktssonar styrki til rannsókna í hag- og stjórnmálasögu 20. aldar og í stjórnsýslu- og stjórnskipunarrétti. Frestur til að skila umsóknum rennur út 1. febrúar 2008. Nánari upplýsingar hér.

10.12.2007

Mikil nýsköpun meðal íslenskra þjónustufyrirtækja

Á fundi þjónustuhóps Stjórnvísis, föstudaginn 7. des., voru fyrstu niðurstöður í samnorræna verkefninu ServINNo kynntar.  Þar kom meðal annars fram að mikil nýsköpun á sér stað meðal íslenskra þjónustufyrirtækja og þá helst meðal fyrirtækja í fjarskiptageiranum (86% fyrirtækja stunda nýsköpun) og í upplýsingatækni (91%).  Íslensk þjónustufyrirtæki stunda jafnmikla og gjarnan meiri nýsköpun en sambærileg fyrirtæki á Norðurlöndunum, minnsta nýsköpun er að finna innan norskra fyrirtækja. 

27.11.2007

Eurostars hér eru kynningarglærurnar frá í morgun

Vel mætt á Eurostars fund.  Tæplega fjörutíu  mættu á kynningarfund um Eurostars í morgun þar sem kynntur var nýr möguleiki á fjármögnun sprotafyrirtækja sem stunda sjálf rannsóknir og þróun.

Meðfylgjandi eru glærur frá kynningarfundinum. 

Eurostars áætlunin

Hvernig skrifa skal umsókn

26.11.2007

Meistaradeild sprotafyrirtækja í Evrópu

Ný fjármögnun fyrir sprotafyrirtæki

Boðað er til opins kynningarfundar um Eurostars, nýjan möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda rannsóknir og þróun. Fundurinn verður þriðjudaginn 27. nóvember kl. 8:30 - 10:00 í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35.

9.11.2007

Verkefnislok - Æviskrif á síðari hluta 20. aldar

Rannsóknasjóður styrkti verkefnið.
Verkefnisstjóri var Gunnþórunn Guðmundsdóttir.

26.10.2007

Nýsköpun í þjónustu: Fyrsta fréttabréf

Út er komið fyrsta fréttabréf verkefnisins ServINNo sem fjallar um nýsköpun í þjónustu á Norðurlöndunum (Service Innovation in the Nordic Countires: Key Factors for Policy Design).  Í fréttabréfinu, sem sækja má hér, má m.a. finna samanburð á umfangi nýsköpunarstarfs þjónustufyrirtækja á Íslandi og grannþjóða okkar.  Meginmarkmið verkefnisins er að koma auga á stefnumótun sem þegar er til staðar og ýtir undir nýsköpun í þjónustu en einnig að benda á þau svið sem tengjast þjónustu og leggja þarf áherslu á í framtíðarstefnumótun.

1.10.2007

Ari Trausti Guðmundsson hlýtur verðlaun Rannís fyrir framlag til vísindamiðlunar

Á Vísindavöku Rannís, föstudaginn 28. september, voru öðru sinni veitt verðlaun fyrir framlag til vísindamiðlunar. Markmiðið með verðlaununum er að vekja athygli á mikilvægi þess að miðla þekkingu á vísindum og vísindastarfi til samfélagsins og styðja við þá sem sýnt hafa frukvæði og verið í fararbroddi við miðlun vísinda. Við mat á tilnefningum til verðlaunanna var tekið tillit til brautryðjendastarfs, fumleika og árangurs og vísindamiðlunar.

19.9.2007

Úthlutun markáætlunar um erfðir og örtækni

Stjórn markáætlunar um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni ákvað á fundi þann 18. september síðastliðinn að styrkja 14 verkefni til þriggja ára. Gengið verður til samninga við verkefnisstjóra viðkomandi verkefna. 

 

1.9.2007

Kynningar á Rannsóknasjóði og Tækjasjóði

Kynningar vegna umsókna fyrir styrkárið 2008.

Rannsóknamiðstöð Íslands stendur fyrir ítarlegum kynningum á Rannsóknasjóði og Tækjasjóði dagana 6. og 7. september í Reykjavík og á Akureyri. Eiríkur Smári Sigurðarson og Anna Kristín Daníelsdóttir munu kynna sjóðina og hlutverk þeirra.

22.8.2007

Íslendingar verja 2.8% af vergri landsframleiðslu í rannsóknir og þróun

Íslendingar vörðu um 28 milljörðum króna til rannsókna og þróunar árið 2005.  Aukning í krónum frá árinu 2003 er 4 milljarðar eða um 16%.  Verg landsframleiðsla jókst á sama tíma um 20%.  Stærstum hluta var varið til heilbrigðismála eða um 9,6 milljörðum króna.  Til samanburðar var um 11% varið til fiskveiða og landbúnaðar eða um 3,1 milljarði króna.  Þessa tölfræði og fleiri upplýsingar má finna í nýútkomnu hefti RANNÍS um rannsóknir og þróun á Íslandi.
Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<