Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

11.12.2008

EraSME auglýsir eftir umsóknum

EraSME er fjölþjóðlegt samstarf stofnana í Evrópu sem styðja rannsóknarsamvinnu lítilla og meðalstórra fyrirtækja (LMF) og rannsóknastofnana. Opið er fyrir umsóknir af öllum sviðum vísinda og tækni. Íslenskir umsækjendur geta sótt um stuðning hjá Tækniþróunarsjóði.  Næsti umsóknarfrestur Tækniþróunarsjóðs er 15. febrúar 2009.

5.12.2008

EMBL býður upp á styrki til doktorsnáms

Þeir sem lokið hafa eins til tveggja ára rannsóknatengdu framhaldsnámi eftir BS próf (MS eða fjórða árs verkefni) í sameindalíffræði, lífefnafræði, efnafræði, eðlisfræði eða skyldum greinum, eru hvattir til að kynna sér tilhögun doktorsnáms við EMBL og senda inn umsókn.

12.11.2008

Kynning á upplýsingatækniáætlun 7. rannsóknaáætlunar ESB

Rannís og Rannsóknaþjónusta Háskóla Íslands efna til morgunverðarfundar um möguleika í upplýsingatækniáætlun 7. rannsóknaáætlunar ESB. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 14. nóvember kl. 8:30-10:30 á Grand Hótel Reykjavík, Háteig.

30.10.2008

Hversu vel virkar 7. rannsóknaáætlunin?

Þann 20. nóvember nk. verður boðað til málþings til að meta hversu vel 7. rannsóknaáætlun ESB hefur virkað frá því hún hófst. Málþingið verður haldið á Radisson SAS hótelinu í Brussel. Nánar hér.

28.10.2008

Meistaradeild sprotafyrirtækja í Evrópu

Boðað er til opins kynningarfundar um Eurostars, nýjan möguleika á fjármögnun verkefna sprotafyrirtækja sem stunda rannsóknir og þróun einnig verður sagt frá  Enterprise Europe Network sem styður einnig við sprotafyrirtæki.

Fundurinn verður föstudaginn 31. október kl. 8:30 - 10:00 í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35.

20.10.2008

Styrkir til rannsókna á mannréttindum

Búið er að úthluta þremur styrkjum til rannsókna á mannréttindum. Mannréttindastofnun Háskóla Íslands fól Rannís að annast úthlutunina.

20.10.2008

Doktorsnám við EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu

Ísland er aðili að EMBL, sameindalíffræðistofnun Evrópu.  EMBL býður upp á doktorsnám í sameindalíffræði og skyldum greinum og geta Íslendingar sótt um námsdvöl við stofnunina.  Nemendur sem teknir eru inn í námið fá framfærslustyrk á meðan á námi stendur og er öll aðstaða til fyrirmyndar, m.a. góð aðstaða fyrir fjölskyldufólk og leikskóli á staðnum.  Stofnunin er í fremstu röð á sínu sviði. 

25.9.2008

Tímaháður flutningur um rafeindakerfi á nanóskala - verkefnislok

Rannsóknirnar tengjast leit manna að mögulegum grunneiningum í rafrásir framtíðarinnar á nanóskala og þeim vanda sem þegar er kominn upp við að minnka rafrásir enn frekar í tölvur og fjarskiptabúnað. Verkefnið var styrkt af markáætlun í erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni.
Verkefnisstjóri var Viðar Guðmundsson, Háskóla Íslands.

23.9.2008

Svar ráðuneytis vegna fyrirspurnar um markáætlun

Svar menntamálaráðuneytis vegna óska um rökstuðning fyrir vali á tíu aðilum til að útfæra hugmyndir að öndvegissetrum og rannsóknaklösum til markáætlunar á sviði vísinda og tækni.

23.9.2008

Reglur og leiðbeiningar Rannsóknasjóðs á ensku

Reglur og leiðbeiningar Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2009 hafa verið þýddar á ensku. Þær má nálgast hér.
Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<