Aðrir sjóðir
25.9.2008
Tímaháður flutningur um rafeindakerfi á nanóskala - verkefnislok
Rannsóknirnar tengjast leit manna að mögulegum grunneiningum í rafrásir framtíðarinnar á nanóskala og þeim vanda sem þegar er kominn upp við að minnka rafrásir enn frekar í tölvur og fjarskiptabúnað. Verkefnið var styrkt af markáætlun í erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni.
Verkefnisstjóri var Viðar Guðmundsson, Háskóla Íslands.
23.9.2008
Svar ráðuneytis vegna fyrirspurnar um markáætlun
Svar menntamálaráðuneytis vegna óska um rökstuðning fyrir vali á tíu aðilum til að útfæra hugmyndir að öndvegissetrum og rannsóknaklösum til markáætlunar á sviði vísinda og tækni.
23.9.2008
Reglur og leiðbeiningar Rannsóknasjóðs á ensku
Reglur og leiðbeiningar Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2009 hafa verið þýddar á ensku. Þær má nálgast hér.
23.9.2008
Annað Vísindakaffið er í dag!
Þriðjudagur 23. september
Hver á að passa mig?
Alyson Bailes og Silja Bára Ómarsdóttir frá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fjalla um öryggismál út frá nýju sjónarhorni – það er alveg öruggt!
Hver á að passa mig?
Alyson Bailes og Silja Bára Ómarsdóttir frá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands fjalla um öryggismál út frá nýju sjónarhorni – það er alveg öruggt!
8.9.2008
Kynningarfundir Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs
Rannsóknamiðstöð Íslands stendur fyrir kynningu á Rannsóknasjóði og Tækjasjóði dagana 12., 16. og 18. september í Reykjavík og á Akureyri.
2.9.2008
Náttúrulegar varnir lungnaþekju í sýkingum og krabbameinsmyndun - rannsóknarverkefni lokið
Meginmarkmið verkefnisins sem hlaut styrk úr markáætlun um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni var að skilgreina ákveðna þætti í varnarkerfi lungnaþekju.
Verkefnisstjóri var Guðmundur Hrafn Guðmundsson, Háskóla Íslands.
Verkefnisstjóri var Guðmundur Hrafn Guðmundsson, Háskóla Íslands.


English




