Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

6.10.2009

Myndir frá Vísindavöku 2009

Myndir frá Vísindavöku 2009 eru komnar á heimasíðuna undir þessum tengli, en einnig má sjá fleiri myndir á myndasíðu hérna.

28.9.2009

Kynningarfundur um þjálfunarnet í Mannauðsáætlun ESB - kynningar

Mánudaginn 28. september stóð Rannís að kynningarfundi um þátttökutækifæri Íslendinga í þjálfunarnetum innan Mannauðsáætlunar ESB. Um 35 manns mættu á fundinn. Aðalfyrirlesarari var Dr. Kaisa Hellevuo frá Evrópusambandinu.

24.9.2009

Kynningarfundur um þjálfunarnet í Mannauðsáætlun ESB

RANNÍS mun halda opinn kynningarfund um þjálfunarnet mánudaginn 28. september með þátttöku fulltrúa Evrópusambandsins. Fundurinn verður haldinn milli kl. 10.00 og 12.00 í húsnæði Endurmenntunar HÍ að Dunhaga 7.

21.9.2009

Sturlunga og nútíminn á fyrsta Vísindakaffinu

Fyrsta Vísindakaffið er í kvöld, mánudag 21. sept. kl. 20:00-21:30 á Súfistanum, Iðuhúsinu Lækjargötu 2. Dr. Guðrún Nordal forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar fjallar um hvernig fíkn ungra karlmanna í völd og fé réði miklu um fall í íslensku samfélagi í tíð Sturlunga. Þetta þykir mörgum ríma óþægilega við fjölda atburða í nútímanum. Alvarlegt málefni með léttum undirtóni!

18.9.2009

Kynningarfundur um Samgönguáætlun ESB

RANNÍS hélt kynningarfund um þátttökutækifæri í Samgönguáætlun Evrópusambandsins föstudaginn 18. september. Aðalfyrirlesari var Frederique Sgarbi frá framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins. Næsti umsóknarfrestur í áætluninni er 4. janúar nk.

10.6.2009

Aukaúthlutun Nýsköpunarsjóðs námsmanna

Vegna mikillar ásóknar í Nýsköpunarsjóð námsmanna í vor ákváðu Katrín Jakobsdóttir, ráðherra mennta- og menningarmála, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, að veita samtals 15 milljónum króna til aukaúthlutunar úr sjóðnum. Um er að ræða fimm milljónir frá ráðuneyti mennta- og menningarmála og tíu milljónir frá iðnaðarráðuneyti. Markmiðið era að gefa fleiri háskólanemum möguleika á að stunda sumarvinnu við nýsköpun og rannsóknir.

Umsóknarfrestur fyrir aukaúthlutunina rann út 3. Júní sl. Alls bárust 250 umsóknir, en stjórn sjóðsins ákvað að styrkja 43 verkefni (17,2%). Alls 60 nemar munu vinna að verkefnunum og hljóta samtals 102 mannmánuði í styrk.

Styrkirnir eru eins og áður veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja. Umsóknir um styrki voru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein.

Sjá hér úthlutun.

21.5.2009

Nýsköpunarsjóður námsmanna fær aukið fé - umsóknarfrestur 3. júní

Katrín Jakobsdóttir, ráðherra mennta- og menningarmála, og Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra, hafa styrkt Nýsköpunarsjóð námsmanna um samtals 15 milljónir króna. Um er að ræða fimm milljónir frá ráðuneyti mennta- og menningarmála og tíu milljónir frá iðnaðarráðuneyti.

7.5.2009

Úthlutun Rannsóknastyrkja Bjarna Benediktssonar 2009

Úthlutunarnefndir sjóðsins Rannsóknastyrkir Bjarna Benediktssonar hafa úthlutað styrkjum til rannsókna á lögfræði og sagnfræði fyrir árið 2009.

 

6.5.2009

Upplýsinga- og samskiptatækni - kynningarfundur 8. maí

Kynningarfundur á vegum Rannís um rannsóknastyrki úr 7. rannsóknaáætlun ESB til upplýsinga- og samkiptatækni verður haldinn á Grand hótel föstudaginn 8. maí kl. 9:00 - 11:00

Markmið áætlunarinnar er að bæta samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og að skapa ramma um framtíðarþróun upplýsinga- og samskiptatækni til að mæta þörfum þjóðfélagsins og hagkerfisins. Upplýsinga- og samskiptatækni er kjarni þekkingarþjóðfélagsins og með starfi og styrkjum áætlunarinnar verður rennt styrkari stoðum undir vísinda- og tæknigrunn Evrópu og tryggt verði að hún verði í forystu á þessu sviði.

30.4.2009

Matvæli, landbúnaður, sjávarútvegur og líftækni

Þann 28. apríl var haldinn kynningarfundur um áætlun 7. Rannsóknaáætlunar ESB sem fjallar um matvæli, landbúnað, sjávarútveg og líftækni. Hér er hægt að nálgast glærukynningu Alfredo Aguilar, fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB.
Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<