Aðrir sjóðir
1.7.2008
Tíu hugmyndir fá umsóknarstyrk í markáætlun
Tíu hugmyndir fá styrk úr markáætlun 2009 - 2015 til að skila fullbúinni umsókn í október næstkomandi. Markáætlunin var auglýst í apríl síðastliðnum og var beðið um hugmyndir að öndvegissetrum og rannsóknaklösum á þeim sviðum sem fjallað er um í ályktun Vísinda- og tækniráðs frá því í desember 2007. Alls bárust 82 hugmyndir.
Starfshópur á vegum Vísinda- og tækniráðs valdi tíu hugmyndir og tók mið af stefnu ráðsins og þeim viðmiðunum sem nefnd eru í lýsingu á markáætluninni. Lokaniðurstaða var kynnt á fundi vísindanefndar og tækninefndar 24. júní síðastliðinn.
Vísinda- og tæknisamfélagið er hvatt til þess að kynna sér þær hugmyndir sem fá framgang og stofna til tengsla við forsvarsmenn sé það talið geta leitt til samstarfs. Eins og fram kemur í lýsingu á markáætluninni er eitt aðalmarkmið hennar að styrkja tengsl milli háskóla, stofnana, fyrirtækja og stjórnvalda á viðkomandi sviði, innanlands sem utan.
Stuttur útdráttur á hugmyndunum sem hljóta styrk verður birtur á heimasíðum Rannís og Vísinda- og tækniráðs um miðjan júlí.
Sjá nánar hér


English




