Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

16.2.2009

Vitvélasetur Íslands - styrkur úr markáætlun

Verkefnisstjórier Kristinn R. Þórisson. Styrkur fyrir árið 2009 nemur allt að 55 millj. kr.

Vitvélastofnun Íslands ("Vitvélar", Icelandic Institute for Intelligent Machines) er rannsóknarstofnun með nýtt samstarfssnið við fyrirtæki, stofnanir og félög. Vitvélar leggur megin áherslu á hugbúnað og tækni á sviðum gervigreindar, vitvísinda og hermunar.

Vaxandi eftirspurn er eftir slíkri tækni víðsvegar um heim, enda nýtist hún á fjölmörgum sviðum svo sem í framleiðslutækni, vörum á almennum markaði, almennum hugbúnaði, netverslunum, tölvuleikjum, umhverfis- og veðurrannsóknum, svo fátt eitt sé nefnt. Tekjur Vitvéla koma frá Íslenskum og erlendum samkeppnissjóðum, útseldri tæknilegri ráðgjöf og frá áskrift fyrirtækja og stofnana. Áskrifendur úr atvinnulífinu færa Vitvélum verkefni tengd eigin starfsemi; þátttaka háskóla veitir doktorsnemum, nýdoktorum og öðrum akademískum starfsmönnum aðgang að verkefnum og möguleika á starfi til bæði langs og skamms tíma. Vitvélar brúar bilið milli framtíðaráætlana atvinnuvegarins og akademíunnar, en tveggja ára sjóndeildarhringur vöruþróunar hins fyrrnefnda er töluvert skemmri en grunnrannsókna háskólanna, sem yfirleitt nær áratug eða lengra fram í tímann. Nýstárlegt rekstrarform Vitvéla gerir það að kjölfestu sem (a) brúar bil milli atvinnuvegar og akademíu og eykur flæði hugmynda, fólks og hugbúnaðar, (b) eykur samstari aðskildra atvinnugreina og aðkomu fjárfesta að hátækni, (c) nýtir samlegðaráhrif ólíkra þátta til þróunar, og (d) færir Íslandi stóraukna möguleika til menntunar og rannsóknarsamstarfs við erlenda háskóla, stofnanir og fyrirtæki.
Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<