Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

16.2.2009

Öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikarannsóknum - styrkur úr markáætlun

Verkefnisstjóri er Irma Erlingsdóttir. Styrkur fyrir 2009 er allt að 35 millj. kr.

Öndvegissetur í jafnréttis- og margbreytileikarannsóknum. Rannsóknir setursins hvíla á þremur megin stoðum: 1) Saga, samfélag, menning; 2) Atvinnulíf og auðlindir; 3) Alþjóðasamskipti og þróunarsamvinna. Jafnréttismál eru snar þáttur í sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og ímynd hennar út á við.

Sú sérþekking sem hér hefur skapast á sviði jafnréttismála á erindi við umheiminn og er víða horft til hins svokallaða „íslenska líkans" sem dæmi um frumlegt, djarft og skilvirkt jafnréttisstarf. Á fyrsta áherslusviði klasans er staða sérfræðiþekkingar sterk en örar samfélagsbreytingar kalla á frekari útvíkkun og þróun jafnréttislíkansins. Með hliðsjón af hinum tveimur meginsviðum verkefnisins verður hið íslenska líkan rannsakað í tengslum við atvinnulíf og auðlindamál, annars vegar, og hins vegar í tengslum við nýjar áherslur í alþjóðasamstarfi og þróunarsamvinnu Íslendinga. Fyrirhugað er að þetta þriðja rannsóknasvið klasans geti orðið fræðilegur bakhjarl fyrir Jafnréttisskóla sem stofnaður verður í desember n.k. og verður sótt um að verði "Jafnréttisskóli Sameinuðu þjóðanna." Rannsóknaklasinn verður vettvangur fyrir samstarf fræðimanna, rannsóknastofnana, stofnana, stjórnvalda og fyrirtækja, hérlendis og erlendis. Með klasanum er stefnt að því að Ísland verði í fararbroddi í rannsóknum, nýsköpun og starfi á þeim sviðum jafnréttismála sem Íslendingar eru sterkastir á og njóta trúverðugleika fyrir. Klasanum verður einnig ætlað að stuðla að þróun nýrra leiða til árangurs í málaflokknum. Með tilkomu öndvegisklasans verður íslenskt samfélag enn virkari og samhæfðari „rannsóknar- og tilraunastofa" á sviði jafnréttismála. Öndvegisklasanum er ætlað að þróa hið íslenska líkan í jafnréttismálum til þess að það verði betur í stakk búið til að mæta áskorunum aukinnar alþjóðavæðingar efnahagslífsins, fjölmenningarsamfélags, breyttri aldurssamsetningar þjóðarinnar, og halda þannig forskoti í krafti fjölbreytileika.
Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<