Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

24.3.2009

Viðskiptasetrið Eyrin á Ísafirði – laus aðstaða í sumar

Í viðskiptasetrinu Eyrinni á ísafirði er aðstaða fyrir 4-6 frumkvöðla.  Markmiðið með viðskiptasetrinu er að skapa frumkvöðlum þekkingarumhverfi , aðstöðu og umgjörð til að vinna að nýsköpun og veita þeim faglega þjónustu og stuðning við framgang hugmynda sinna.  Í sumar býðst námsmönnum aðstaða á setrinu endurgjaldslaust sem eru að vinna verkefnum tengd nýsköpun eða rannsóknum.

Það sem felst í aðstöðu  á viðskiptasetri er  skrifstofuhúsnæði, aðgangur að fundarherbergjum, þjónusta móttöku og símsvörunar, fagleg ráðgjöf og stuðningur Impru á Nýsköpunarmiðstöð og Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða og skapandi umhverfi og öflugt tengslanet fyrirtækja og starfsmanna Impru og Atvest.  Frumkvöðlar  þurfa sjálfir að sjá um tölvur og síma.

 Eyrin er staðsett í Þróunarsetri Vestfjarða ásamt fjölmörgum öðrum stofnunum og fyrirtækjum. En þar eru; Matís, Hafrannsóknarstofnunin, Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða, Vinnumálastofnun, Fjórðungssamband Vestfjarða, Háskólasetur Vestfjarða, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Fjölmenningarsetur, Snjóflóðasetur Veðurstofu Íslands, Rauði Krossinn, Ísfang, Skipamiðlun Gunnars Jónssonar, Teiknistofan Eik, Vinnueftirlitið , Starfsendurhæfing Vestfjarða og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Viðskiptasetrið er ekki ósvipað frumkvöðlasetrum Nýsköpunarmiðstöðvar, Impra á Nýsköpunarmiðstöð rekur nú þegar 5 viðskipta- og frumkvöðlasetur; í Keflavík, á Höfn í Hornafirði auk þriggja í Reykjavík.

Hægt er að sækja um aðstöðu á Eyrinni á heimasíðu Impru;  http://www.impra.is/ eða hafa samband við Örnu Láru Jónsdóttir arnalara@nmi.is eða Sigríði Ólöfu Kristjánsdóttur sirry@nmi.is til þess að fá nánari upplýsingar.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<