Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

6.5.2009

Upplýsinga- og samskiptatækni - kynningarfundur 8. maí

Kynningarfundur á vegum Rannís um rannsóknastyrki úr 7. rannsóknaáætlun ESB til upplýsinga- og samkiptatækni verður haldinn á Grand hótel föstudaginn 8. maí kl. 9:00 - 11:00

Markmið áætlunarinnar er að bæta samkeppnishæfni evrópsks atvinnulífs og að skapa ramma um framtíðarþróun upplýsinga- og samskiptatækni til að mæta þörfum þjóðfélagsins og hagkerfisins. Upplýsinga- og samskiptatækni er kjarni þekkingarþjóðfélagsins og með starfi og styrkjum áætlunarinnar verður rennt styrkari stoðum undir vísinda- og tæknigrunn Evrópu og tryggt verði að hún verði í forystu á þessu sviði.

Dagskrá

Upplýsinga- og samskiptatækni í 7. Rannsóknaáætlunar ESB - Oluf Nielsen, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB.

Reynsla af þátttöku í verkefni á vegum áætlunarinnar - Kristinn R. Þórisson, Háskólanum í Reykjavík

Aðstoð í boði fyrir væntanlega umsækjendur - Aðalheiður Jónsdóttir, Rannís

Fyrirspurnir

Fundarstjóri: Sigurður Björnsson, Rannís

Boðið verður upp á morgunverð

Vinsamlegast sendið tilkynningu um þátttöku á netfangið rannis@rannis.is

Boðið verður upp á stutta einstaklingsfundi með Oluf Nielsen eftir hádegi. Áhugasamir geta pantað tíma hjá Rannís í síma 515 5800, eða á rannis@rannis.is.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<