Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Aðrir sjóðir

Aðrir sjóðir

5.12.2005

185 m.kr. úthlutað til erfðafræði og örtækni

Stjórn markáætlunar um erfðafræði í þágu heilbrigðis og örtækni samþykkti sl. fimmtudag að veita 185,2 milljónum króna til 14 verkefna. Þetta er fyrsta úthlutun áætlunarinnar sem hleypt var af stokkunum í samræmi við stefnu Vísinda- og tækniráðs frá 18. desember 2003 og ályktun ráðsins frá 17. desember 2004.

Umsóknir í markáætlunina voru alls 23, þar af 13 umsóknir um styrki á sviði erfðfræði í þágu heilbrigðis og 10 á sviði örtækni. Sótt var um samtals 329.6 millj. kr. til tveggja ára. Samþykkt úthlutun er til 14 verkefna, þar af átta á sviði erfðafræði í þágu heilbrigðis og sex á sviði örtækni. Samtals er úthlutað 185.2 millj. kr., þar af alls 111.3 millj. kr. í erfðafræðina og 73.9 millj. kr. í örtæknina. Úthlutað er til tveggja ára.

Nánar hér um úthlutunina

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<