Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Alþjóðastarf

Alþjóðastarf

26.9.2011

Fýluböllurinn eftirminnilegur sveppur

Fréttastofa RÚV mætti á Vísindavöku sl. föstudag og tók tal af Guðríði Gyðu Eyjólfsdóttur, doktor í sveppafræðum. Í frétt á www.ruv.is segir:

Í bás Náttúrufræðistofnunar er sérstök kynning á sveppum. Þar má finna sníkjusveppi, samlífssveppi og rotsveppi. Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir er doktor í sveppafræðum. „Við erum með rotnandi gorkúlur sem eru sjálfar rotnandi, rotsveppir. Svo erum við með sýnishorn af líkama svepps þar sem hann vex á viðarsneið.“

23.9.2011

Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness hlýtur viðurkenningu fyrir vísindamiðlun

Við setningu Vísindavöku 2011 var Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness veitt viðurkenning fyrir vísindamiðlun.

23.9.2011

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN VÍSINDAMENN!

Vísindavaka 2011 verður haldin í dag föstudaginn 23. september í Háskólabíói kl. 17-22. Rannsóknamiðstöð Íslands, RANNÍS, stendur fyrir Vísindavöku en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu í tengslum við Dag vísindamannsins. Evrópusambandið styrkir verkefnið, en Vísindavaka verður haldin samtímis í fjölmörgum borgum Evrópu. Sjá evrópska heimasíðu verkefnisins.

23.9.2011

Viðtal í Morgunútvarpi Rásar 2 við nemendur HÍ sem hönnuðu verðlaunakappakstursbíl

Vísindavaka 2011 verður sett kl. 17 í dag í Háskólabíói og stendur til kl. 22. Þar er margt í boði fyrir alla fjölskylduna, til að mynda má búast við að margir vilji sjá og fræðast um kappakstursbíl sem nemendur við  verkfræðideild Háskóla Íslands hönnuðu og hefur fengið alþjóðleg verðlaun fyrir.

Hér má hlusta á viðtalið við þá Arnar Freyr Lárusson verkfræðinema og Einar Hreinsson verkfræðing sem tekið var við þá félaga í Morgunútvarpi Rásar 2 í morgun.  

22.9.2011

Vísindakaffi kvöldsins: Offita barna - hvað er til ráða?

 Prófessor Ragnar Bjarnason yfirlæknir barnalækninga og Dr. Þrúður Gunnarsdóttir sálfræðingur á Barnaspítala Hringsins munu fjalla um rannsóknir á algengi og meðferð offitu hjá börnum og unglingum, á Súfistanum í kvöld kl. 20.


20.9.2011

Vísindakaffið í kvöld: Kuldinn síðasta sumar afsannar hlýnun jarðar!...er það ekki?

Vísindakaffi gærkvöldsins " Að fæðast - hættulegasta ferðalagið?" , í umsjá Dr. Brynjars Karlssonar, dósents við HR tókst með afbrigðum vel og var fullt út úr húsi á Súfistanum. Vísindakaffi kvöldsins fjallar hins vegar um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar, kal í túnum og hafís.

19.9.2011

Vísindakaffi kvöldsins: Að fæðast - hættulegasta ferðalagið?

Dr. Brynjar Karlsson, dósent við Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík fjallar um burðarmálsdauða á Íslandi, sem er með því allra lægsta sem gerist í heiminum. Hins vegar er burðarmálsdauði álíka mikill og fjöldi dauðsfalla í umferðinni á hverju ári og þar af leiðandi gríðarlega stórt heilbrigðisvandamál. Sjá frétt RÚV frá 12. sept. um þessa nýju tækni.

19.9.2011

Stefnumót við vísindamenn í Háskólabíói á föstudaginn

Vísindavaka Rannís verður haldin föstudaginn 23. september kl. 17-22 í Háskólabíói.

17.9.2011

Fréttabréf Rannís fyrir september komið

Nýtt fréttabréf fyrir september er komið út.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<