Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Alþjóðastarf

Alþjóðastarf

14.4.2003

Upplýsingafundur Upplýsingatækniáætlunar 6. RÁ um "Cognitive Systems" -20. júní 2003 í Luxembourg

Upplýsingadagur vegna auglýsingar Upplýsingaáætlunar 6. RÁ eftir verkefnaumsóknum á sviði "Cognitive Systems"verður haldinn í Luxemburg 20. júní n.k.  Umsóknarfrestur í Upplýsingatækniáætlunina er 15. október 2003.

14.4.2003

Ný köll opin í 6. rannsóknaáætlun ESB

Þann 4. apríl síðastliðinn auglýsti framkvæmdastjórn 6. RÁ eftir SSA-umsóknum (Specific Support Action) á eftirtöldum sviðum: Efnis-,framleiðslu- og örtækni, flug- og geimtækni, gæði og öryggi matvæla, sjálfbær þróun og hnattrænar breytingar; sjálfbær orkukerfi og sjálfbærar samgöngur á jörðu niðri. Síðar á árinu verður auglýst eftir samskonar umsóknum í erfðafræði og líftækni og sjálfbærum orkukerfum. Umsóknarfrestur er til 26. júní 2003.

14.4.2003

Rafrænar umsóknir í 6. rannsóknaáætlun ESB

Framkvæmdastjórn 6. RÁ mælir eindregið með því að umsækjendur í áætlunina sækji um með rafrænum hætti/Electronic Proposal Submission System (EPSS). Hægt er að sækja um bæði "on-line" og "off-line".

31.3.2003

Auglýst eftir tilnefningum til verðlauna fyrir "rafrænar stjórnsýslu-lausnir" (eGovernment Solutions)

Evrópusambandið auglýsir eftir tilnefningum til verðlauna fyrir hugbúnað, forrit og/eða rafrænum lausnum á sviði rafrænnar stjórnsýslu sem tekur til gagnkvæmra beintengdra samskipta við stjórnsýslustofnanir. Tilnefndar lausnar geta tekið til allra stjórnsýslustiga.

27.3.2003

International Conference on Socio Political Informatics and Cybernetics

Auglýst eftir framsögum á alþjóðlegri ráðstefnu um "International Conference on Socio Political Informatics and Cybernetics" sem haldin verður í Pista '03 July 31, August 1-2, 2003 - Orlando, Florida, USA.

26.3.2003

Styrkir til að nýta rannsóknaraðstöðu

EIERO - European Infrastructure for Energy Reserve Optimisation er ný áætlun sem styrkt er af Evrópusambandinu. Áætlunin styrkir rannsóknafólk með því að útvega því aðstöðu til rannsókna í The Institute of Petroleum Engineering og the Ocean Systems Laboratory í Heriot-Watt University í Edinborg í Skotlandi. Einnig er styrkurinn veittur til ferða- og dvalarkosnaðar. Gert er ráð fyrir að rannsóknaraðilinn dvelji í Edinborg í 1 til 3 ár.

26.3.2003

Ársskýrsla COST samstarfsvettvangsins fyrir 2002

Ársskýrsla COST 2002  er komin út. Hægt er að sækja skýrsluna á vef COST undir "publications".

17.3.2003

Alþjóðleg ráðstefna í lífvísindum í Munchen 2.-4. apríl 2003

Um er að ræða sameignlega ráðstefnu "Forum Life Science 2003" og "21st DECHEMA Annual Biotechnology Meeting". Fjölmargir sérfræðingar úr iðnaðar- og vísindageiranum munu kynna yfirstandandi rannsóknaverkefni og nýjustu rannsóknaniðurstöður.

14.3.2003

Upplýsingar til umsækjenda í 6. rannsóknaáætlun ESB

Nú þegar fyrstu köllin fara að loka þurfa umsækjendur að huga að ýmsu. Framkvæmdastjórn áætlunarinnar sendi RANNÍS tilkynningu um villu í Guide for Proposers, að umsóknir væru ekki að berast á réttan stað og fleira.

5.3.2003

Descartes-verðlaunin 2003

Verðlaunin eru veitt alþjóðlegum rannsóknahópum fyrir afburðarárangur í vísinda- og tæknirannsóknum. Umsóknarfrestur rennur út 13. maí 2003.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<