Alþjóðastarf
<< Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 Næstu >>
4.6.2010
Tækifæri til að komast inn í COST verkefni
Þrjátíu ný COST verkefni hafa verið samþykkt og nú er tækifæri til að óska eftir að komast inn í verkefnin. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum og er aðkoma að þeim einföld og opin fyrsta ár verkefnsins. COST greiðir fyrir kostnað vegna ferða og ráðstefnuhalds en ekki fyrir kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. Þátttaka í COST hefur oft leitt til áframhaldandi samstarfs í stærri verkefnum. HÉR er að finna upplýsingar um verkefni sem hafa nýlega verið samþykkt.
21.5.2010
Munið að skrá ykkur!
Minnum á Rannsóknaþing 2010 og afhendingu Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs fimmtudaginn 27. maí nk. Dagskráin hér. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800.
20.5.2010
Rannsóknaþing og afhending Hvatningarverðlauna 27. maí
Rannís og Vísinda- og tækniráð boða til Rannsóknaþings 2010 þann 27. maí kl. 8:30 - 11:20 á Grand Hótel Reykjavík. Fjöldi áhugaverðra fyrirlestra verður í boði auk þess sem Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs verða afhent ungum vísindamanni. Skráning á rannis@rannis.is eða í síma 515 5800.
4.5.2010
Fréttabréf aprílmánaðar komið út
Raffréttir Rannís fyrir apríl eru komnar út. Nálgast má fréttabréfið hér en einnig er tilvalið að skrá sig á útsendilistann hér.
6.4.2010
Áhugaverð ráðstefna um orkurannsóknir
European Energy Research ráðstefnan verður haldin 20.-23. apríl í Barcelona á Spáni. Fyrir þá sem hafa áhuga á orkurannsóknum, þá eru nánari upplýsingar hér.
19.3.2010
Ísland í 14. sæti í nýsköpun
Út er komin Evrópska stigataflan um nýsköpun (European Innovation Scoreboard) sem greinir frá samanburði á frammistöðu aðildaþjóða Evrópusambandsins í nýsköpun auk Króatíu, Serbíu, Tyrklands, Íslands, Noregs og Sviss. Ísland er í 14. sæti í hópi 33 landa í þessari nýjustu mælingu Evrópusambandsins.
10.3.2010
Umsóknarfrestur í EuroNanoMed
Lýst er eftir umsóknum í EuroNanoMed, en það er ERA-NET sem veitir styrki til rannsóknasamstarfs á sviði örtækni á heilbrigðissviði. Katrín Valgeirsdóttir hefur umsjón með EuroNanoMed hjá Rannís. Nánar hér eða í netfangi katrin@rannis.is
9.3.2010
Raffréttir Rannís komnar út
Marsútgáfa Raffréttabréfs Rannís er komin út. Hægt er að nálgast fréttabréfið hér. Rafrænt fréttabréf Rannís hóf göngu sína í október 2009 og hér er hægt að sækja eldri útgáfur. Þeir sem vilja fá fréttabréfið sent skrái netfang sitt hér.
19.2.2010
Viltu byggja upp samstarfsnet á þínu rannsóknasviði?
Þrjátíu ný COST verkefni hafa verið samþykkt, en tilgangur þeirra er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum og leiða saman samstarfsaðila.
18.2.2010
Fjármálanámskeið um evrópsk rannsóknarverkefni
Berkley Associates, sem haldið hafa námskeið hérlendis, verða með opin námskeið um fjármálastjórnun og endurskoðun evrópskra rannsóknarverkefna í Brussel 31. mars og 22. apríl.
<< Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 Næstu >>


English




