Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Alþjóðastarf

Alþjóðastarf

18.11.2008

Hvað er 7. rannsóknaráætlun ESB? Umsóknarferlið og hugmyndavinnan - námskeið

Fimmtudaginn 20 nóvember mun RANNÍS standa fyrir námskeiði um umsóknarferli 7.Rá ESB. Námskeiðið fer fram á íslensku og kennari verður Dr. Sigurður G. Bogason og verður gefið yfirlit yfir neðangreind efnisatriði, auk þess um önnur atriði varðandi FP7 er þátttakendur vilja bera fram. Námskeiðið verður með hringborðssniði til að örva gagnvirkar umræður milli þátttakenda og kennara.

Sigurður starfar sem framkvæmdastjóri hjá MarkMar ehf [http://markmar.is/index.html], sem er rannsóknafyrirtæki sem veitir þjónustu við gerð umsókna. Þjónusta þessi frá byrjun FP7 til dagsins í dag hefur stuðlað að sóknarárangri íslenskra rannsóknaraðila sem nemur alls um 4 milljónum Evra í FP7 styrkjum.

Efni námskeiðsins
Hvað er 7.rannsóknaáætlun ESB?
Umsóknarferlið og hugmyndavinnan
Val samstarfsaðila og fjárhagur verkefna
Ritun og frágangur umsókna
Rafræn skil á umsókna - EPSS
Samningaferlið og ræsing verkefnis
Rekstur verkefnis

Námskeiðið fer fram milli kl. 8:30.- 12:30 hjá Rannís, Laugavegi 13, 4. hæð. Þátttakendur skulu senda skráningu á netfangið elisabet@rannis.is fyrir kl. 16.00 miðvikudaginn 19.nóvember. Námskeiðsgjald er kr. 12.500 og innifalin eru námskeiðsgögn og kaffiveitingar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<