Alþjóðastarf
21.4.2009
Heilbrigðisvísindi í 7. rammaáætlun ESB kynningarfundur
Rannís efnir til kynningarfundar föstudaginn 24. apríl um styrki til heilbrigiðisvísinda sem bjóðast í 7. rannsóknaáætlun Evrópusambandsins. Fundurinn er á Grand hótel 24. apríl kl. 9:00 - 11:00.
Markmið áætlunarinnar er styrkja rannsóknaverkefni er stuðla að bættri heilsu íbúa Evrópu og efla samkeppnishæfni heilbrigðisgeirans og fyrirtækja tengdum honum.
Dagskrá:
Heilbrigðisvísindaáætlun 7. Rannsóknaáætlunar ESB - Indriði Benediktsson, fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB
Reynsla af þátttöku í samstarfsverkefnum innan heilsu- og lífvísindaáætlana ESB - Prófessor Ingileif Jónsdóttir, Landspítala háskólasjúkrahúsi, Háskóla Íslands og Íslenskri erfðagreiningu.
Aðstoð í boði fyrir umsækjendur - Elísabet M Andrésdóttir, alþjóðasviði Rannís
Fundarstjóri: Katrín Valgeirsdóttir, Rannís
Vinsamlegasta sendið tilkynningu um þátttöku á netfangið rannis@rannis.is
Boðið verður upp á stutta einstaklingsfundi með Indriða Benediktssyni eftir hádegi. Áhugasamir geta pantað tíma hjá Rannís í síma 515 5800, eða á rannis@rannis.is.


English




