Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Alþjóðastarf

Alþjóðastarf

22.12.2011

Þrjátíu ný COST verkefni samþykkt

Nú í byrjun desember voru 30 ný COST verkefni samþykkt.

Hér er listi yfir ný COST verkefni, eða sk. COST Actions.

Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet á ákveðnum rannsóknasviðum. Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir. Verkefnið greiðir fyrir kostnað vegna ferða og ráðstefnuhalds en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni.

Ísland getur tilnefnt tvo fulltrúa í hvert verkefni. Aðkoma að þessum verkefnum er mjög einföld og öllum opin fyrsta ár verkefnisins.

Upplýsingar um umsóknarferli hér.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<