Fjörutíu ný Cost verkefni samþykkt

30.11.2015

Fjörutíu ný COST verkefni hafa verið samþykkt. Tilgangur COST verkefna er að byggja upp samstarfsnet rannsakenda í Evrópu á ákveðnum rannsóknasviðum. Þátttakendur í COST verkefnum skiptast á reynslu og niðurstöðum í gegnum fundi og ráðstefnur, vinnustofur og heimsóknir. 

Verkefnið greiðir fyrir kostnað vegna ferða og ráðstefnuhalds en greiðir ekki kostnað við rannsóknaverkefnin sjálf. COST verkefni hafa oft leitt til áframhaldandi samstarfs á milli þátttakenda í styrkumsóknum í stærri verkefni í Rannsóknaáætlun ESB. 

Ísland getur tilnefnt tvo fulltrúa í hvert verkefni. Aðkoma að þessum verkefnum er mjög einföld og öllum opin fyrsta ár verkefnisins. 

Upplýsingar um umsóknarferlið og sniðmát af umsóknarbréfi

Samþykkt COST verkefni 2015

Frekari upplýsingar veitir Katrín Valgeirsdóttir.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica