Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Fréttabréf

Fréttabréf

1.6.2011

Fréttabréf Rannís maí 2011 komið út

Fréttabréf Rannís fyrir maí 2011 er komið út. Meðal efnis: Rannsóknaþing Rannís 8. júní nk., kynning á öryggis- og geimáætlunum 7. rá, endurbættur Euraxess vefur, upplýsingar um úthlutanir úr Tækjasjóði, Launasjóði fræðiritahöfunda og sjóði Bjarna Benediktssonar og afstaða Íslands til stefnumótunar ESB í rannsóknum og nýsköpun.

4.5.2010

Fréttabréf aprílmánaðar komið út

Raffréttir Rannís fyrir apríl eru komnar út. Nálgast má fréttabréfið hér en einnig er tilvalið að skrá sig á útsendilistann hér.

28.11.2006

Rýr hlutur kvenna í nýsköpun í Bretlandi

Konum í stjórnum breskra fyrirtækja hefur fækkað til muna síðastliðin þrjú ár.  Nýleg tölfræði hefur leitt í ljós að um 3,7% framkvæmdastjóra breskra FTSE 100-fyrirtækja eru konur.  Árið 2003 reyndist eitt FTSE 100-fyrirtæki státa sig af kvenkyns forstjóra.  Þessir þróun varpar óbeint ljósi á hlut kvenna í nýsköpun þar í landi því gera má ráð fyrir að forysta kvenna í stjórnum fyrirtækja endurspegli að einhverju leyti forystu þeirra í nýsköpun.

28.11.2006

Umfangsmikil nýsköpunarstarfsemi danskra fyrirtækja

Niðurstöður úr Fjórðu nýsköpunarkönnuninni (CIS4) leiðir í ljós að dönsk fyrirtæki, ásamt sænskum og þýskum fyrirtækjum, eru líklegust til þess að stunda nýsköpun samanborið við fyrirtæki í öðrum Evrópuríkjum.

12.6.2006

RANNÍS óskar eftir þátttakendum í viðtalsrannsókn sem fjallar um íslenska doktora á erlendri grund

RANNÍS vinnur um þessar mundir að rannsókn á högum íslenskra doktora á erlendri grundu.  Markmiðið með verkefninu er að komast að því hvernig laða megi langmenntað fólk, sem ílenst hefur í útlöndum, aftur til Íslands og virkja hér á landi mannauðinn sem í því býr. 

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<