Fréttabréf
12.6.2006
RANNÍS óskar eftir þátttakendum í viðtalsrannsókn sem fjallar um íslenska doktora á erlendri grund
RANNÍS vinnur um þessar mundir að rannsókn á högum íslenskra doktora á erlendri grundu. Markmiðið með verkefninu er að komast að því hvernig laða megi langmenntað fólk, sem ílenst hefur í útlöndum, aftur til Íslands og virkja hér á landi mannauðinn sem í því býr.
Áætlað er að taka viðtöl við nokkra útskrifaða doktora með ólíkan bakgrunn sem starfa og búa erlendis. Viðmælendur munu njóta nafnleyndar og fyllsta trúnaðar verður gætt.
Nokkuð skortir á upplýsingar um íslenska fræðimenn erlendis. Því auglýsum við eftir fólki, eða ábendingum um fólk, sem lokið hefur doktorsnámi og starfar erlendis. Hafir þú áhuga, eða þekkir til einhverra, sem gætu haft áhuga á að ræða um nám, störf og framtíðaráform, viljum við vinsamlegast biðja þig að hafa samband við RANNÍS:
Páll Rafnar Þorsteinsson
Sími: (+354) 515 58 22
Netfang: pallrafnar@rannis.is
Ásdís Jónsdóttir
Sími: (+354) 515 58 07, GSM: 895-4602
Netfang: asdis@rannis.is


English




