Fréttabréf
28.11.2006
Umfangsmikil nýsköpunarstarfsemi danskra fyrirtækja
Niðurstöður úr Fjórðu nýsköpunarkönnuninni (CIS4) leiðir í ljós að dönsk fyrirtæki, ásamt sænskum og þýskum fyrirtækjum, eru líklegust til þess að stunda nýsköpun samanborið við fyrirtæki í öðrum Evrópuríkjum.
Samkvæmt könnuninni leggja um 50% danskra iðn- og þekkingarfyrirtækja stund á nýsköpun. Þetta þýðir að á þriggja ára tímabili hafa þessi fyrirtæki þróað nýjar eða verulega bættar vörur eða komið á fót nýjum eða verulega bættum framleiðsluaðferðum.
Niðurstöður könnunarinnar gefa til kynna að stærð fyrirtækja og tegund atvinnugreina hefur mikil áhrif á umfang nýsköpunar. Helmingur fyrirtækja í hátækni og þekkingariðnaði stunduðu nýsköpun að einhverju tagi. Af stórum fyrirtækjum með 250 starfsmenn eða fleiri stunda 66% nýsköpun, en aðeins 33% fyrirtækja með 10 starfsmenn eða færri stunda nýsköpun.


English




