Fréttabréf
28.11.2006
Rýr hlutur kvenna í nýsköpun í Bretlandi
Konum í stjórnum breskra fyrirtækja hefur fækkað til muna síðastliðin þrjú ár. Nýleg tölfræði hefur leitt í ljós að um 3,7% framkvæmdastjóra breskra FTSE 100-fyrirtækja eru konur. Árið 2003 reyndist eitt FTSE 100-fyrirtæki státa sig af kvenkyns forstjóra. Þessir þróun varpar óbeint ljósi á hlut kvenna í nýsköpun þar í landi því gera má ráð fyrir að forysta kvenna í stjórnum fyrirtækja endurspegli að einhverju leyti forystu þeirra í nýsköpun.
Nýleg tölfræði, sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman, yfir framkvæmdastjóra, stjórnarformenn og stjórnarmenn fyrirtækja árið 2005 gefur tilefni til að ætla að íslenskar konur komi meira að nýsköpunarstarfsemi en þær bresku, sé gengið út frá fyrrnefndum forsendum. Fram kemur að frá árinu 1999 hefur hlutfall kvenna sem sitja í stjórnum fyrirtækja og gegna stjórnarformennsku haldist nánast óbreytt eða í kringum 22%. Á sama tíma hefur fyrirtækjum með konur sem framkvæmdastjóra fjölgað um 2,8%, en árið 2005 voru 18,2% fyrirtækja með konu í broddi fylkingar.


English




