Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Hagtölur

Greining

3.6.2009

Vegvísir um innviði rannsókna

Með vísan til samþykktar Vísinda- og tækniráðs á vorfundi 2. júní 2008 skipaði forsætisráðherra þ. 5. september s.l. nefnd sem hafi forystu um gerð vegvísis um uppbyggingu innviða til rannsókna á Íslandi. Í nefndinni sitja Friðrika Harðardóttir tilnefnd af menntamálaráðuneyti (formaður), Ingileif Jónsdóttir, Jón Torfi Jónasson og Pétur Reimarsson tilnefnd af starfsnefndum Vísinda- og tækniráðs og Þorvaldur Finnbjörnsson tilnefndur af Rannís (tók við af Oddnýju Ósk Sverrisdóttur).

Nefndinni var falið að móta vegvísi um rannsóknainnviði fram til árisins 2020.  Markmið vegvísisins er að gera grein fyrir því í hverju metnaðarfull og skynsamleg uppbygging og viðhald innviða á Íslandi á tímabilinu felst. Í honum felst stefnumótandi áætlun og forgangsröðun um uppbyggingu innviða.  Nefndin byggði vinnu sína m.a. á Vísinda- og tæknistefnu fyrir árin 2006-2009, þar sem áhersla er lögð á að byggja upp mennta- og vísindakerfi í fremstu röð meðal þjóða og ályktun haustfundar Vísinda- og tækniráðs 2007 um áskoranir og áherslur í vísindum, tækniþróun og nýsköpun á næstu árum, sem byggir á skýrslum vinnuhópa frá nóvember 2007 um framtíðarsýn á sviðinu. Þá var litið til ábendinga frá vísindasamfélaginu um þörf fyrir innviði í könnun Rannís og á opnum fundum um drög að stefnu Vísinda- og tækniráðs fyrir 2009-2012  í ársbyrjun 2009, svo og vinnu nágrannaþjóða okkar og á Evrópuvettvangi.

Skýrsluna má nálgast hér.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<