Greining
12.11.2009
Vísindi, árangur og fjármögnun
Rannís efndi til ráðstefna á Hótel Grand þriðjudaginn 3. nóvember 2009 til að kynna umræðu um árangur sem grundvöll fyrir fjármögnun vísinda. Gunnar Sivertsen, sérfræðingur frá NIFU-STEP í Noregi, flutti erindi um „norska líkanið" sem hefur að markmiði að mynda grundvöll fyrir fjármögnun vísinda.
Fjármögnun vísinda er venjulega með tvennum hætti. Annars vegar bein framlög hins opinbera á fjárlögum og hins vegar framlög til vísindamanna í gegnum samkeppnissjóði á vegum rannsókna- eða vísindaráða.
Framlög úr sjóðum fara venjulega í gegnum matsferli þar sem sérfræðingar leggja mat á gæði verkefna og möguleika þeirra með jafningjamati. Framlög á fjárlögum fara yfirleitt beint til stofnana sem síðan dreifa þeim eftir eigin aðferðum. Norska líkanið gerir mögulegt að miða framlög til einstakra vísindamanna við árangur þeirra í birtingum í ritrýndum tímaritum.
Á eftir Gunnari hélt Magnús Magnússon hjá Rannís stutt erindi um birtingar, tilvitnanir og áhrif þeirra. Gerði Magnús sérstaklega grein fyrir svonefndum H-index sem mælir áhrif birtra greina annars vegar í samhengi við fjölda greina og hins vegar með fjölda tilvitnana í greinar viðkomandi vísindamanns.
Að loknum erindum þeirra Gunnars og Magnúsar voru umræður.
Hér eru glærur með kynningu Gunnars.
Hér eru glærur með kynningu Magnúsar.


English




