Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Hagtölur

Greining

8.7.2010

Dregið í happdrætti Rannsóknavogar Rannís

Þrír vinningshafar í happdrætti Rannsóknavogar Rannís hafa verið dregnir út og hljóta þeir að launum gjafabréf fyrir fjóra í Borgarleikhúsið á sýningu að eigin vali. Heppnir þátttakendur voru valdir af handahófi úr hópi þeirra sem skiluðu inn svörum fyrir 5. júlí sl.

Þann 14. júní 2010 sendi Rannís út könnun sína á rannsóknum og þróunarstarfi til fjölda íslenskra fyrirtækja og stofnanna, hina svokölluðu Rannsóknavog. Rannís gerir könnun af þessu tagi annað hvert ár og eru niðurstöður hennar mikilvægar m.a. fyrir stefnu stjórnvalda á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar. Könnunin er unnin eftir aðferðum OECD og Eurostat og er hún eitt besta tæki til alþjóðlegs samanburðar á stöðu rannsókna og þróunar hér á landi sem völ er á.

Þrír þátttakendur í könnuninni voru valdir af handahófi úr hópi þeirra sem skiluðu könnuninni fyrir 5. júlí sl. Þessir þátttakendur hljóta að launum gjafabréf fyrir fjóra í Borgarleikhúsið.Vinningahafarnir eru: Ómar Ásgeirsson, Martaki ehf, Grindavík; Björn Karlsson, Brunamálastofnun, Reykjavík og Logi Arnar Guðjónsson, Glófa ehf, Akureyri Með þessu gjafabréfi viljum við þakka vinningshöfum kærlega fyrir þátttökuna í könnun okkar. Innlegg þeirra er okkur mikils virði. Nánari upplýsingar um Rannsóknavog Rannís veita Elva Brá Aðalsteinsdóttir elva@rannis.is og Hugrún Ýr Helgadóttir hugrun@rannis.is

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<