Greining
9.6.2011
Rannsóknir og þróun á Íslandi 2009
Rannsóknavog Rannís fyrir 2009 - Rannsóknir og þróun á Íslandi er komin út.
Í Rannsóknarvoginni fyrir 2009 kemur fram að Íslendingar vörðu 46,5 milljörðum króna til rannsókna og þróunarstarfs árið 2009. Framlagið nemur 3,1% af vergri landsframleiðslu sem er sjötta hæsta hlutfall ríkja innan OECD. Hlutfallið hefur hækkað frá árinu 2007 en þá reyndist það vera 2,7%. Mikilvægt er að taka þessari hækkun með fyrirvara því í reynd hafa útgjöld til rannsókna og þróunar nánast staðið í stað frá því mælingar voru síðast gerðar meðan landsframleiðslan dróst saman í kjölfar efnahagshrunsins. Fyrirtæki fjármagna tæpan helming útgjalda til rannsókna og þróunar en hið opinbera um 40%; erlend framlög eru um 10% fjármagnsins. Árið 2009 unnu um 5.500 manns við rannsóknir og þróunarstarf og skilaði hópurinn um 3.800 ársverkum. Um 2.800 þessara ársverka voru unnin af háskólamenntuðu fólki, þar af voru um 620 ársverk unnin af fólki með doktorsgráðu. Karlar standa að baki rúmlega 60% ársverka við rannsóknir og þróunarstörf á Íslandi. Stærstu viðfangsefni rannsókna og þróunar á Íslandi eru tengd iðnaði og heilbrigðismálum.


English




