Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir » Hagtölur

Greining

8.7.2005

24 milljarðar kr. í rannsóknir og þróun á Íslandi

Íslendingar setja 24 milljarða króna í rannsóknir og þróun og um fimm þúsund og fimmhundruð manns starfa að rannsóknum og þróun, samkvæmt nýrri rannsókn Rannís.

 

Fjárfesting Íslendinga við rannsóknir og þróun telst vera 2,97% af vergri landsframleiðslu sem þýðir að Ísland er í 4 sæti í alþjóðlegum samanburði. Um 1.350 ársverk voru unnin við fyrirtæki í landinu við rannsóknir og þróun. Innan við 30% Íslendinga á aldrinum 25-34 ára eru með háskólapróf. Lönd sem við berum okkur saman við eru með um 40-50% hlutfall háskólamenntaðra í sama aldurshópi. Fjöldi Íslendinga í doktorsnámi hefur aukist verulega á síðari árum. Árið 2004 voru um 144 í doktorsnámi á Íslandi samanborið við 7 manns árið 1995.

Rannsóknir á sviði heilbrigðismála eru um þriðjungur allra rannsókna á Íslandi en rannsóknir í greinum eins og landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaðartengdum greinum eru einnig áberandi. Fjárfestingar í grunnrannsóknum hafa vaxið jafnt og þétt síðustu áratugi en það eru þó fyrirtækin sem hafa staðið fyrir mestri aukningu rannsókna og þróunar í landinu.

Sjá skýrslu Rannís í heild hér.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<