Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

19.2.2007

Opinn fundur um NordForsk í Háskóla Íslands

Rannís og Háskóli Íslands boða til hádegisfundar þriðjudaginn 20. febrúar kl. 12:15 í Hátíðasal Háskólans í Aðalbyggingu. Liisa Hakamies-Blomqvist, forstöðumaður NordForsk kynnir starfsemi stofnunarinnar og þau margvíslegu tækifæri til rannsóknastyrkja sem bjóðast í norrænu vísindasamstarfi. Hún og þrír ráðgjafar frá NordForsk, Susanna Sepponen, Kristin Oxley og Maria Nilsson, munu svara fyrirspurnum og tækifæri gefst til að hitta þær að loknum fundi til frekara skrafs.

Eftir erindið verður boðið upp á hádegishressingu.

NordForsk er sjálfstæð norræn stofnun sem styrkir rannsóknastarf og vísindamenntun á Norðurlöndum og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina.

NordForsk styrkir meðal annars netsamstarf, námskeiðahald, starfsmanna- og nemendaskipti og og veitir undirbúningsstyrki. NordForsk rekur einnig norrænar áætlanir um öndvegissetur og rannsóknaskóla á ýmsum sviðum.

Nánari upplýsingar um NordForsk má finna á www.nordforsk.org.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<