Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

28.3.2007

Vötn og vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu – ástand og horfur

Föstudaginn 30. mars næstkomandi verður haldið málþing um Vötn og vatnasvið á höfuðborgarsvæðinu – ástand og horfur á Hótel Loftleiðum. Málþingið hefst kl. 8:30 með setningarræðu Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra.

Á málþinginu verður fjallað á heildstæðan hátt um ástand vatna og vatnasviða á höfuðborgarsvæðinu með tilliti til náttúru og nýtingar. Um 20 fræðimenn flytja erindi þar sem fjallað verður um vatnafræði, jarðfræði, líffræði, mengun og hlutverk sveitarfélaga varðandi umgengni við vatnaauðlindina.

Sérstakur gestur málþingsins er dr. Nikolai Friberg, frá Macaulay Land Use Research Institute, Aberdeen, Skotlandi, en Nikolai býr yfir víðtækri þekkingu á áhrifum landnotkunar á vatanauðlindir í Evrópu. Dr. Nikolai hefur mikla í vinnu af framkvæmd vatnatilskipunar Evrópusambandsins.

Meginmarkmið málþingsins er að veita yfirlit yfir stöðu þekkingar á helstu sviðum sem snerta vatnaauðlindina, einkum í því skyni að tryggja gæði hennar til framtíðar. Í ljósi vaxandi byggðaþéttingar og aukins álags er brýnt að ræða stöðu mála og horfur varðandi þessa mikilvægu auðlind.

Málþingið er öllum opið en hentar einkum einstaklingum og aðilum sem vinna við stjórnsýslu, skipulags- og umhverfismál, fræðslu og framkvæmdir.

 Skipuleggjendur og aðstandendur málþingsins eru: Veiðimálastofnun (www.veidimal.is), Náttúrufræðistofa Kópavogs (www.natkop.is), Líffræðistofnun Háskólans (www.hi.is), Jarðvísindastofnun Háskólans (www.jardvis.hi.is/).
Aðrir aðstandendur málþingsins eru: Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær, Garðabær, Álftanes, Seltjarnarnesbær, Kjósarhreppur.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<