Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

6.6.2007

Kristján Leósson hlýtur hvatningarverðlaunin 2007

Kristján Leósson eðlisverkfræðingur tók við hvatningarverðlaunum Vísinda- og tækniráðs úr hendi Geirs H. Haarde formanns ráðsins á Rannsóknaþingi sem haldið var á Grand hótel.

Kristján starfar sem vísindamaður hjá Eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskóla Íslands en sinnir einnig kennslu og leiðbeinir nemendum í meistara- og doktorsnámi við skólann.

Kristján er fæddur árið 1970 í Kanada en ólst upp á Íslandi. Hann lauk B.Sc.-prófi í eðlisverkfræði og jafnframt B.A.-prófi í heimspeki sem aukagrein frá Queen’s University í Kanada árið 1994. Þá snéri hann heim og lauk M.Sc.-prófi í eðlisfræði frá Háskóla Íslands árið 1996. Fjallaði meistaraverkefni hans um „Hreyfanleika íbótarefna í hálfleiðurum“.  Kristján lauk síðan doktorsprófi í rafmagnsverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) árið 2001. Doktorsverkefni Kristjáns fjallaði um „Ljóseiginleika nanó-agna, sem m.a. nýtast í samskiptatækni og líftækni“. Fyrir verkefnið fékk hann m.a. verðlaun frá, „Direktør Peter Gorm-Petersen's Memorial Trust“  sem veitt eru einum doktorsnema á ári við DTU fyrir framúrskarandi árangur í verkefni, sem tengir saman grundvallarrannsóknir og tækniþróun.

 Að námi loknu tók hann þátt í að stofna sprotafyrirtækið Micro Managed Photons A/S og starfaði þar og síðar hjá Lumiscence A/S sem verkefnisstjóri við hönnun og framleiðslu á ljósrásum til ársins 2005 þegar hann flutti aftur heim til Íslands. Við Raunvísindastofnun hefur hann síðan tekið þátt í uppbyggingu örtæknirannsókna og m.a. haft umsjón með hönnun og uppsetningu á svokölluðu hreinherbergi fyrir örtækniframleiðslu sem er hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þessa aðstöðu nota nú fjölmargir vísindamenn og nemendur til tilrauna í örtækni og framleiðslu á ýmsum nanó-tækjum. Helstu verkefni Kristjáns fjalla um nýjar tegundir örrása sem geta samtímis leitt rafstraum og ljósmerki. Markmið rannsóknanna er að með slíkum rásum megi stýra ljósmerkjum í ljósleiðurum á mun skilvirkari hátt en nú er gert. Kristján hefur verið mjög afkastamikill vísindamaður og m.a. birt hátt í 40 greinar í ritrýndum tímaritum og bókum og er einnig höfundur á fimm einkaleyfaumsóknum.

Allt í kringum okkur eru tæki og tól sem byggja á örtækni. Tölvur, farsímar, internetið, öryggisbúnaður í bílum og geislaspilarar innihalda örsmáa hreyfanlega hluti eða rásir sem flytja vökva, ljós eða rafmagn. Þetta segir okkur hve mikilvægar örtæknirannsóknir Kristjáns og félaga hans geta verið.

Þörfin fyrir verkfræði- og raunvísindamenntað fólk hefur aldrei verið meiri en nú og því mikilvægt að vísindamenn eins og Kristján séu sýnilegir og góðar fyrirmyndir fyrir ungt fólk, sem er að velja sér framtíð. Kristján hefur einnig lagt rækt við þennan þátt og lagt sig fram um að kynna sitt fag og fræði fyrir almenningi með fyrirlestrum og fjölmiðlaviðtölum. Í menntaskóla var hann tvisvar þátttakandi í Ólympíuleikum í eðlisfræði og nú í næstu viku ætlar hann að kenna námskeið í örtækni við Háskóla unga fólksins. Þar ætlar hann m.a að svara því „Hvort tölvur geti orðið óendanlega öflugar og hvort vélmenni muni öðlast meðvitund “. Unga fólkið mun áreiðanlega líka hlusta spennt á þegar hann útskýrir fyrir þeim hvort hægt verði að hala niður DVD-mynd á innan við sekúndu og hvort iPod spilari eigi eftir að komast fyrir í eyrnalokki.

Kristján uppfyllir ákflega vel viðmið dómnefndarinnar, sem skipuð er fimm verðlaunahöfum, og er verðugur handhafi Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2007.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<