Rannís
3.4.2008
Nýr forstöðumaður Rannís
Hans Kristján Guðmundsson hefur látið af störfum sem forstöðumaður Rannís. Menntamálaráðherra hefur skipað Hallgrím Jónasson, framkvæmdastjóra hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands, sem forstöðumann Rannsóknamiðstöðvar Íslands.
Hallgrímur er fæddur 17. apríl 1952. Hann lauk B.Sc. í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 1977, B.Sc.hon. í jarðefnafræði árið 1978 og M.Sc. í jarðverkfræði frá Durham University árið 1981.
Hallgrímur hóf störf hjá Iðntæknistofnun árið 1980 og var forstjóri hennar 1992-2007. Frá 1. ágúst 2007 hefur hann starfað sem framkvæmdastjóri fyrir erlend samskipti og viðskiptaþróun hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.


English




