Rannís
13.5.2008
Rannsóknaþing 27. maí helgað rannsóknum í fyrirtækjum
Rannsóknaþing verður haldið á Grand hótel þann 27. maí kl. 8:30. Rannsóknir í fyrirtækjum er yfirskrift þingsins.
Alþjóðlegar samanburðarmælingar sýna að Íslendingar hafa dregist aftur úr í nýsköpunar- og þróunarstarfi í atvinnulífinu á undanförnum árum og er brýnt að auka hvata til að snúa þeirri þróun við. Í fámennu landi er mikilvægt að leggja saman kraftana. Vísinda- og tækniráð hefur í framtíðarsýn sinni til 2020 m.a. lagt áherslu á virkt samstarf fyrirtækja, háskóla og stofnana í rannsóknum, nýsköpun og þróunarstarfi. Öflugar rannsóknir eru undirstaða þekkingarþjóðfélagsins og brýnt að hvetja sem flest fyrirtæki til þess að þær verði reglulegur þáttur í starfsemi þeirra.
Dagskrá verður auglýst síðar.


English




