Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

19.5.2008

Rannsóknaþing 27. maí - rannsóknir í fyrirtækjum

Þriðjudaginn 27. maí kl. 8:30-11:10 á Grand Hótel Reykjavík, Hvammi, Sigtúni 38

Alþjóðlegar samanburðarmælingar sýna að Íslendingar hafa dregist aftur úr í nýsköpunar- og þróunarstarfi í atvinnulífinu á undanförnum árum og er brýnt að auka hvata til að snúa þeirri þróun við. Í fámennu landi er mikilvægt að sameina kraftana. Vísinda- og tækniráð hefur í framtíðarsýn sinni til 2020 m.a. lagt áherslu á virkt samstarf fyrirtækja, háskóla og stofnana í rannsóknum, nýsköpun og þróunarstarfi. Öflugar rannsóknir eru undirstaða þekkingarþjóðfélagsins og brýnt að hvetja sem flest fyrirtæki til þess að þær verði reglulegur þáttur í starfsemi þeirra.

 

 

Dagskrá

8.30 Setning. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra

8.45 Rannsóknir í íslenskum fyrirtækjum.

Hver er staðan nú? Guðrún Nordal, formaður vísindanefndar

9.00 Rannsóknir í sprotafyrirtækjum. Kristján Leósson, Háskóla Íslands (Hvatningarverðlaun 2007) Björn Örvar, ORF Líftækni (Nýsköpunarverðlaun 2008) Vilborg Einarsdóttir, Mentor (Vaxtarsprotinn 2008)

9.45 Nauðsyn rannsókna í fyrirtækjum.

Tryggvi Þór Herbertsson, forstjóri Askar Capital

10.00 Pallborð. Hvernig er hægt að örva fyrirtæki til rannsókna? Þingmennirnir Illugi Gunnarsson, Katrín Jakobsdóttir, Katrín Júlíusdóttir og Birkir Jónsson sitja í pallborði. Stjórnandi er Þorlákur Karlsson prófessor, forseti viðskiptadeildar HR

Dagskrá vegna hvatningarverðlauna

Vísinda- og tækniráðs

10.30 Tónlist. Ragnheiður Gröndal söngkona og Guðmundur Pétursson gítarleikari

10.45 Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Vísinda- og tækniráðs, afhendir Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Jakob K. Kristjánsson formaður dómnefndar gerir grein fyrir niðurstöðu nefndarinnar

11.10 Rannsóknaþingi slitið

Fundarstjóri Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís

Rannsóknaþingið er öllum opið.

Þinggestir eru vinsamlega beðnir að skrá sig með tölvupósti til rannis@rannis.is eða í síma 515 5800

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<