Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

30.9.2008

Örnólfur verðlaunaður fyrir vísindamiðlun

Á vísindavöku Rannís var Örnólfur Thorlacius verðlaunaður fyrir framlag sitt til vísindamiðlunar. Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís og Hellen M. Gunnarsdóttir deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu afhentu Örnólfi verðlaunin við setningarathöfn vísindavöku í Listasafni Reykjavíkur s.l. föstudag.

 

Örnólfur hefur um langt árabil unnið ötullega að því að miðla ótal sviðum náttúruvísinda til almennings með mjög fjölbreyttu efni fyrir sjónvarp, útvarp, dagblöð og tímarit auk útgáfu fjölda bóka.

Örnólfur kenndi um árabil náttúruvísindi við Menntaskólann í Hamrahlíð. Hann átti mikinn þátt í að byggja upp fyrstu náttúrufræðibrautina við framhaldsskóla hérlendis. Hann hefur skrifað fjölda kennslubóka og verið afkastamikill við nýyrðasmíð. Hann var fyrsti umsjónarmaður sjónvarpsþáttarins „Nýjasta tækni og vísindi". Örnólfur hefur lagt mikla áherslu á að fræða almenning og þá sérstaklega yngsta fólkið með skrifum sínum, einkum í tímaritinu Náttúrufræðingnum.

Hann hefur lagt sig eftir því að efla áhuga barna og unglinga á heimi vísindanna og meðal bóka sem hann hefur gefið út eru Bókin um vatnið, Bókin um hjólið, Bókin um hraðann, Tilraunabók barnanna og Galdrabók barnanna sem hafa notið vinsælda hjá börnum.

Við val á verðlaunahafa leitaði Rannís eftir tilnefningum og fékk ábendingar um 14 aðila. Þessar tilnefningar voru lagðar fyrir dómnefnd sem í sátu Elísabet M. Andrésdóttir hjá alþjóðasviði Rannís, Eiríkur Smári Sigurðarson hjá vísindaskrifstofu menntamálaráðuneytisins,Viðar Hreinsson framkvæmdastjóri ReykjavíkurAkademíunnar og Ari Ólafsson verðlaunahafi frá árinu 2006. Við mat á tilnefningum til verðlaunanna var tekið tillit til brautryðjendastarfs, frumleika og árangurs við vísindamiðlun.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<