Rannís
21.11.2008
Hlutverk vísinda í framtíð Íslands: Hvernig tryggjum við gæði vísinda á tímum aðhalds í ríkisrekstri?
MÁLÞING á vegum Vísindafélags Íslendinga
Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur, föstudaginn 28. nóvember, kl. 14-16.
Á málþinginu verður rætt um stefnu vísinda og tækniráðs. Sérstök áhersla verður lögð á samkeppnissjóði og hvernig þeir geti styrkt besta vísindastarfið hverju sinni. Öruggasta leiðin að því marki er að leggja áherslu á gæði vísindanna, með hlutlausu og faglegu jafningjamati.
14:00-14:10 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra. Inngangsorð
14:10-14:25 Guðrún Nordal, formaður Vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs. Stefna Vísinda- og tækniráðs
14:25-14:40 Þórólfur Þórlindsson, prófessor. Gæðamat í vísindastarfi
14:40-14:55 Einar Steingrímsson, prófessor. Mikilvægi samkeppnissjóða fyrir eflingu vísinda á Íslandi
14:55-15:10 Magnús Karl Magnússon, læknir. Hlutverk vísinda í þekkingarsköpun nútímasamfélagsins
15:10-16:00 Pallborðsumræður með þátttöku fyrirlesara og menntamálaráðherra
Fundarstjóri: Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
Með stórfelldri eflingu samkeppnissjóða er stoðum komið undir grunnrannsóknir sem eru undirstaða þekkingarsköpunar og grundvöllur þess að hægt sé að umbreyta hugmyndum í arðbæran þekkingaiðnað. Vísinda- og tækniráð hefur á undanförnum árum aukið fjármagn til samkeppnissjóða sem hefur skilað okkur betri vísindum og meiri afköstum. Það er hins vegar afar brýnt að við sláum ekki slöku við á þessum erfiðu tímum heldur stórefla samkeppnissjóðina á næstu misserum vísindunum, þekkingariðnaðinum og þjóðinni allri til heilla.


English




