Rannís
10.7.2009
Sérfræðingur óskast á Rannís
Starfið felst í umsjón og stjórn verkefna á greiningarsviði. Úttektir, greiningar og rannsóknir á Íslandi sem byggjast bæði á eigindlegum og megindlegum aðferðum. Umsjón með öflun og úrvinnslu gagna. Skýrslugerð ásamt kynningu niðurstaðna og þátttöku í erlendu samstarfi.
Hjá Rannís eru gerðar úttektir, greiningar og rannsóknir á sviði vísinda, tækni og nýsköpunar á Íslandi, í samræmi við alþjóðleg viðmið. Niðurstöður rannsókna eru birtar og kynntar á opinberum vettvangi. Unnið er að mörgum metnaðarfullum rannsóknum, oft í fjölþjóðlegu samhengi sem m.a. kallar á erlend samskipti.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Meistarapróf í hagfræði, tölfræði eða skyldum greinum
- Reynsla af greiningu eigindlegra og/eða megindlegra gagna
- Þekking á SPSS er kostur
- Reynsla af þátttöku í fjölþjóðlegu greiningarstarfi er æskileg
- Áhugi á málefnum vísinda, tækni og nýsköpunar, starfsreynsla innan sviðsins er kostur
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð ásamt frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi
- Góð málakunnátta áskilin, þar með talið gott vald á að skrifa texta
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Upplýsingar um starfið veita Þorvaldur Finnbjörnsson, sviðsstjóri greiningarsviðs í netfangi thorvald@rannis.is og Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís í netfangi: hallgrimur@rannis.is
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2009
Umsækjendur senda rafræna umsókn með ferilskrá á netfangið: herdis@rannis.is, merkt: Starfsumsókn úttekt og greining.
Við ráðningu í störfin verður tekið mið af jafnréttisáætlun Rannís. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.


English




