Rannís
21.10.2009
Þjóðarspegill í tíunda sinn
Þjóðarspegillinn X 2009, tíunda félagsvísindaráðstefna Háskóla Íslands, verður haldin af félags-og mannvísindadeild, félagsráðgjafardeild, hagfræðideild, lagadeild, sálfræðideild, stjórnmálafræðideild og viðskiptafræðideild í Lögbergi, Háskólatorgi og Odda föstudaginn 30. október frá klukkan 09:00 til 17:00. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
Málstofur á ráðstefnunni eru 48 og á þeim eru fluttir um 170 fyrirlestrar. Fjöldi fyrirlestra er til vitnis um fjölbreytt og öflugt rannsóknarstarf á sviði félagsvísinda hér á landi og eru fyrirlesarar í fremstu röð hver á sínu sviði.
Sjá dagskrá hér.


English




