Rannís
22.1.2010
Tækniþróunarsjóður - styrkir til nýsköpunar
Auglýst er eftir umsóknum í Tækniþróunarsjóð. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2010. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar hér.
Tækniþróunarsjóður heyrir undir iðnaðarráðherra. Hann starfar samkvæmt lögum um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins, nr. 75/2007.
Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sjóðnum er heimilt að fjármagna nýsköpunarverkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs.
Mikilvægt er að auka fjölbreytni atvinnulífsins og hraða uppbyggingu þekkingar- og hátæknistarfsemi. Stjórn Tækniþróunarsjóðs telur sjóðinn mæta þessum sjónarmiðum með því að skilgreina nýjar áherslur í samræmi við hlutverk sjóðsins. Sjá nánar hér.


English




