Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

4.11.2010

Norðurslóðadagurinn 10. nóv. í Norræna húsinu

Þann 10. nóv. kl. 9-16 verður Norðurslóðadagurinn í Norræna húsinu, en hann er tileinkaður breytingum á norðurslóðum og vöktun umhverfis og samfélags.

 

Á Norðurslóðadeginum verður fjallað á þverfaglegan hátt um framlag og verkefni íslenskra aðila sem koma að vöktun, rannsóknum, menntun og alþjóðlegri samvinnu á norðurslóðum. Samhliða fyrirlestrum og pallborðsumræðu kynna stofnanir og félög er tengjast viðfangs- og málefnum norðurslóða starfsemi sína og rannsóknir með veggspjöldum og öðru kynningarefni í anddyri Norræna hússins. Dagskráin hefst kl. 09:00 með ávarpi umhverfisráðherra og lýkur með Minningarfyrirlestri Vilhjálms Stefánssonar 2010, sem hefst kl. 15:00.    

Skipuleggjendur Norðurslóðadagsins eru Samvinnunefnd umhverfisráðuneytisins um málefni norðurslóða í samvinnu við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar og Rannís. Stefnt er að því að dagurinn verði árviss viðburður og haldinn nálægt afmælisdegi Vilhjálms Stefánssonar landkönnuðar og mannfræðings, sem er 3. nóvember.   

Þorsteinn Gunnarsson hjá Rannís veitir allar nánari upplýsingar. Sími 515 5800 eða netfang thorsteinng@rannis.is

Norðurslóðadeginum verður vefvarpað á www.arcticportal.org 

Dagskrá hér.

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<