Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

16.11.2010

Haustþing Rannís 25. nóvember 2010

Frá rannsóknum til nýsköpunar er yfirskrift Haustþings Rannís sem haldið verður 25. nóvember kl. 8.30-10.30 á Hótel Sögu

Á haustþinginu verður stefnumótun ESB til lengri tíma í rannsóknum, menntun og nýsköpun sett í samhengi við umræðuna sem á sér stað hér á landi og rætt um mikilvægi tengingar milli grunnrannsókna og nýsköpunar í atvinnulífi.

Gestur Rannís og aðalfyrirlesari á þinginu verður Dr. Luke Georghiou frá Háskólanum í Manchester en hann hefur mjög góða yfirsýn yfir þessa umræðu og mun leggja áherslu á þýðingu vísinda- og rannsóknasamfélagsins fyrir verðmætasköpun í framtíðinni.

Rögnvaldur Sæmundsson,dósent við Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík og forstöðumaður Rannsóknarmiðstöðvar HR í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum, fjallar um leiðina frá grunnrannsóknum til nýsköpunar á Íslandi og á alþjóðavettvangi, og einnig mun Grétar Ingi Grétarsson aðstoðarforstjóri Norrænu einkaleyfastofunnar ræða einkaleyfi sem mælikvarða á þekkingu. 

Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra flytur opnunarávarp. Fundarstjóri verður Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís. Morgunverður verður í boði fyrir gesti Haustþings Rannís. Yfirlit dagskrár hér. Skráning á rannis@rannis.is

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<