Beint á leiðarkerfi vefsins

Slóð:

Forsíða » Fréttir

Rannís

10.12.2010

Úthlutun styrkja til þróunar á rafrænni stjórnsýslu

Fimm íslensk fyrirtæki og stofnanir hlutu nýverið styrki til rannsókna og þróunar á rafrænni stjórnsýslu í gegnum norrænu/baltnesku samstarfsáætlunina Citizen-centric eGovernment Services 2010. 

Verkefnin snúa að aðgangi almennings að tölulegum upplýsingum hagstofa og að skjölum opinberra skjalasafna, að rafrænni heilbrigðisþjónustu, rafrænum umsóknum um byggingarleyfi og að heildarkerfi aðgangs borgaranna að rafrænni þjónustu.

Íslensku styrkþegarnir eru Skýrr, IDEGA, Hagstofan, Brunamálastofnun og Þjóðskjalasafnið. Í heild nema styrkirnar til allra aðilanna um 50 milljónum íslenskra króna.

Áætlunin er samstarf Rannís, NordForsk, Vinnova í Svíþjóð og ráðuneyti efnahags- og upplýsingamála í Eistlandi en þátttaka Rannís byggði auk eigin framlags á framlögum frá Samtökum iðnaðarins, iðnaðarráðuneytinu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Verkefnin eru unnin af fyrirtækjum, háskólum og opinberum stofnunum og skal a.m.k. einn aðili koma frá hverju þátttökulandi áætlunarinnar.   

Alls var sótt um styrki til 18 verkefna sem öll fengu góða einkunn matsaðila sem komu frá háskólum og ráðgjafarfyrirtækjum í Evrópu. Fyrirhugað er að halda samstarfinu áfram á árinu 2011 ef fjármagn fæst frá samstarfslöndunum, en framlag Íslands tekur mið af þjóðarframleiðslu. Vinnova í Svíþjóð hefur umsjón með samstarfinu, sjá HÉR.

Margrét Björnsdóttir hjá Háskóla Íslands situr í stjórn áætlunarinnar fyrir hönd Rannís á Íslandi og veitir hún nánari upplýsingar.  

Fréttir - RSS

  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
  • Rannís
<