Auglýst eftir umsóknum úr SEF - Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskólakennara

31.10.2014

Umsóknarfrestur vegna styrksumsókna gestafyrirlesara og ráðstefnustyrkja er 1. desember 2014

Um er að ræða styrki fyrir:    

  1. Skólameistara framhaldsskóla: sem tilnefnir 1-2 kennara til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 200.000 krónur á þátttakanda.
    Einnig getur skólameistari sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi í skólanum að hámarki 30.000 krónur.
  2. Faggreinafélög: sem tilnefna 1-2 stjórnarmenn til að sækja námskeið eða ráðstefnu erlendis. Styrksupphæð er 200.000 krónur á þátttakanda.
    Einnig getur faggreinafélagið sótt um styrk fyrir gestafyrirlesara til að halda erindi fyrir félagið að hámarki 30.000 krónur.

 Ferðatímabilið / gestafyrirlesturinn í þessari umsóknarumferð er 1. júní 2014 -1. október 2015. (Ath. í næstu umsóknarumferð, september 2015, verður einungis hægt að sækja um styrki fram í tímann, ekki afturvirkt).

Umsóknir skulu innihalda rökstudda lýsingu á því hvernig námskeiðið, ráðstefnan eða gestafyrirlesarinn gagnist skólanum, kennurunum og skólasamfélaginu og hvernig kynningu á afrakstri verður háttað. Stjórn SEF mun meta umsóknir og vel unnin umsókn er skilyrði fyrir styrkveitingu.

Nánari upplýsingar á heimasíðu sjóðsins









Þetta vefsvæði byggir á Eplica