Kynjahalli í vísindum? - Staða mála og framtíðarsýn

16.11.2014

Föstudaginn 21. nóvember kl. 11:45  -13:00 í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands

Vísindafélags Íslendinga boðar til umræðufunds um kynjahalla í vísindum, föstudaginn 21. nóvember nk.

Dagskrá:

11:45 -12:00. Hvernig standa konur þegar kemur að doktorsnámi, styrkveitingum og setu í fagráðum? Magnús Lyngdal Magnússon, skrifstofustjóri hjá Miðstöð framhaldsnáms við Háskóla Íslands.

12:00 -12:15. Skýrsla um kynjahlutfall í rannsóknum á Norðurlöndum: Skrefi framar í kynjajafnvægi í vísindum?“ Guðrún Nordal, prófessor í íslensku við HÍ og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.

12:15 -12:30. Kynjasjónarhorn á vísindasamfélagið: Evrópuverkefnið GARCIA gegn kynjun og misrétti. Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræði við Háskóla Íslands.

12:30 - 13:00. Umræður

Fundarstjóri: Þórólfur Þórlindsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands

Boðið verður upp á kaffi og kleinur á undan fræðslufundinum frá kl. 11:15


Útdrættir erinda:

Magnús Lyngdal Magnússon: Hvernig standa konur þegar kemur að doktorsnámi, styrkveitingum og setu í fagráðum?

Litið verður á kynjahlutföll á tímabilinu 2004-2013 í fagráðum og stjórnum Rannsóknasjóðs og styrkveitingum, í hópi fastráðinna akademískra starfsmanna (með áherslu á HÍ) og í hópi doktorsnema við HÍ og brautskráðra doktora þaðan.

Dr. Guðrún Nordal: Skýrsla um kynjahlutfall í rannsóknum á Norðurlöndum: „Skrefi framar í kynjajafnvægi í vísindum?“

Um 80 prósent prófessora á Norðurlöndum eru karlmenn. Kynjahlutföll í háskólasamfélaginu er þess vegna mikilvægt svið vísindastefnumörkunar. Þó hafa litlar umræður verið um málefnið á samnorrænum vettvangi. Skýrslan sýnir stöðu mála og þróun þeirra og tekur dæmi um árangursríkar aðgerðir jafnframt því sem hún leggur áherslu á áskoranir á sviði stefnumörkunar þegar kemur að kynjajafnvægi.

Dr. Þorgerður Einarsdóttir: Kynjasjónarhorn á vísindasamfélagið: Evrópuverkefnið GARCIA gegn kynjun og misrétti

Verkefnið GARCIA - Gendering the Academy and Research: Combating Career Instability and Asymmetries, er þriggja ára samstarfsverkefni háskóla í sjö Evrópulöndum sem felst í ítarlegum rannsóknum á einni háskólastofnun í hverju þátttökulandanna. Sú þekking sem skapast í verkefninu verður nýtt til að stuðla að jafnréttismenningu og vinna gegn mismunun og staðalímyndum. Í erindinu verður greint frá helstu áherslum verkefnisins og þær settar í samhengi við rannsóknir á kynjun í vísindasamfélaginu









Þetta vefsvæði byggir á Eplica