Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku fyrir útlendinga

Umsóknarfrestur til 5. janúar 2015 kl. 16:00

2.12.2014

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.

Markmiðið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru hér á landi og skráðir eru með lögheimili í Þjóðskrá, tækifæri á að öðlast  nauðsynlega færni í íslensku til að geta orðið virkir samfélagsþegnar á Íslandi.

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.

Opnað verður fyrir umsóknir 8. desember 2014 og er hægt að skila umsókn til 5. janúar 2015 kl. 16.00.

Umsókn skal skilað á rafrænu formi. Sjá frekari upplýsingar um sjóðinn.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica