Styrkir úr Æskulýðssjóði

11.8.2015

Rannís auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Æskulýðssjóði. Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2015 kl. 17:00

Hlutverk sjóðsins er að styrkja verkefni á vegum æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Einkum er horft til verkefna sem eru unnin fyrir börn og ungmenn og/eða með virkri þátttöku þeirra, þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða, nýjungar og þróunarverkefni og samstarfsverkefni æskulýðsfélaga og æskulýðssamtaka. Allir þeir sem eru í forsvari fyrir æskulýðsfélög og æskulýðssamtök geta sótt um. Ekki er gert ráð fyrir að hefðbundin íþróttafélög sæki um verkefni sem snúa að íþróttastarfsemi í þennan sjóð.

Verkefnin þurfa að falla að markmiðum laga um æskulýðsfélög. Þar segir að með æskulýðsstarfi sé átt við skipulagða félags- og tómstundastarfsemi þar sem börn og ungmenni starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þau sjálf meta að verðleikum. Hvorki er heimilt að styrkja árvissa né fasta viðburði í félagsstarfi svo sem þing, mót eða þess háttar atburði né ferðir hópa.

Næsti umsóknarfrestur er til 1. september 2015 kl. 17:00.

Sótt er um rafrænt í gegnum umsóknarkerfi Rannís.

Sjá frekari upplýsingar um Æskulýðssjóð og hvernig sótt er um.









Þetta vefsvæði byggir á Eplica