Rannís
21.2.2006
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs - frestur til 15. mars
Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi er treysti stoðir mannlífs á Íslandi. Tilnefningafrestur er til 15. mars.
Verðlaunin eru tvær milljónir króna.
Tilnefningar mega koma frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknarstofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna er heimilt að koma með tilnefningar til verðlaunanna. Með tilnefningu fylgi ferilskrá vísindamannsins.
Við mat á tilnefningum til verðlaunanna er tekið tillit til námsferils viðkomandi vísindamanns, sjálfstæðis, frumleika og árangurs í vísindastörfum að loknu námi; ritsmíða, einkaleyfa og framlags í störfum á alþjóðavettvangi svo og annarra vísbendinga um líklegan árangur af störfum viðkomandi. Sérstaklega er litið til brautryðjandastarfs í vísindum. Þá er litið til faglegs framlags til starfsfélaga á vinnustað og miðlunar þekkingar til samfélagsins.
Almennt er miðað við að þeir sem koma til álita séu ekki eldri en 40 ára, en tekið er tillit til tafa sem kunna að verða á ferli vísindamanns vegna umönnunar barna.
Fimm handhafar verðlaunanna skipa dómnefnd og eiga eftirtaldir einstaklingar sæti í henni: Jakob K. Kristjánsson, forstjóri Prokaria, Svanhildur Óskarsdóttir, fræðimaður á Stofnun Árna Magnússonar, Steinunn Thorlacius, sérfræðingur hjá Urði Verðandi Skuld, Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, og Hilmar Janusson, þróunarstjóri Össurar hf.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 15. mars 2006.
Tilnefningum og upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað til
Rannís, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, eða með tölvupósti
á netfangið


English




